Færsluflokkur: Bloggar
Til hamingju Island
10.10.2007 | 07:57
![]() |
Hvergi dýrara að fylla á tankinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hvað er að gerast í Vesturbæ ?
10.10.2007 | 07:55
Það er ekki einleikið hvernig Vesturbærinn er að verða. síðan KR klikkaði illa í boltanum í sumar hefur hver fréttin rekið aðra úr Vesturbæ sem eru miður skemmtilegar. Morð á Hringbraut er það versta en svo koma stungusár, líkamsárásir og svo var bíllinn minn taggaður illilega af einhverjum misprúttnum lágmenningarskríl. Ég tengi marga af þessum atburðum til slæms gengi KR í fótbolta og því er það ekki bara einkamál KR-inga hvort þeir nái að rífa sig upp úr þessu heldur verður öll borgin að leggjast á eitt til hjálpa Vesturbæ.
![]() |
Stunginn í bakið með skærum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Skemmdarverk á eigum annara.
9.10.2007 | 08:00
Skemmdarverk á eigum annara eru því miður ótrúlega algeng. Ég lenti í því að bíllinn minn sem er VW Transporter sendibíll var útkrotaður einn morguninn af taggi. Ég bölvaði í hljóði þessum djöfuls lítilmennum og lágmenningarpakki og þreif bílinn með erfiðismunum og rispaðist bíllinn aðeins við þau þrif því fast sat taggið. Ég parkeraði svo bílnum fyrir framan blokkina á neshaganum og vonaðist til að hann fengi nú að vera í friði því ég er að reyna að selja gripinn.. en nei. Tveimur dögum síðar var búið að tagga bílinn aftur og nú með tússi sem ekki er hægt að þvo af.. ég réðist á taggið með sérstökum klútum sem ekki voru ókeypis skal ég segja ykkur en það sjást enn för eftir taggið á lakkinu ef bíllinn er skoðaður í návígi.
Ég hafði samband við lögreglu og var greinilegt á því samtali að lögreglunni var skítsama um svona atburði og vildu helst ekki vera að hlusta á mig þegar önnur og mikilvægari málefni biðu afgreiðslu lögreglunnar.. td að leggja sig á daginn svo þeir geti fylgst með óþjóðalýðnum sem fer út fyrir dyrnar að pöbbnum til að reykja um nætur.. m.ö.o. lögreglan sagði við mig að þetta væri ekki í hennar verkahring að rannsaka svona atburði. Ekki skrítið þótt að taggarar leiki lausum hala þrátt fyrir fögur fyrirheit hjá Gísla mávamorðingja og Villa vitlausa í kosningabaráttunni.
Hvað á maður að gera ef maður verður vitni að svona atburði ? Ég get sagt það að ef ég sé krakka, ungling eða fullorðinn mann (já það eru nokkrur sjálfráða sem haga sér svona líka) vera að krota á vegg eða eigur annara þá mun ég skerast í leikinn og það með hamagangi og látum.. jafnvel þótt það kosti það að ég þurfi að mæta fyrir lögreglu og svara fyrir glæpinn..
Djöfuls skítapakk !
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
ekki er ég hissa
5.10.2007 | 20:57
![]() |
Marion Jones játar ólöglega lyfjanotkun fyrir rétti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Miðað við framferði israela..
5.10.2007 | 11:21
.. á hernumdu svæðunum þá held ég að þeir mættu bara hverfa af svæðinu.. þeir hafa fyrirgert sínum rétti. Eru terror þjóð sem heldur milljónum manna í helgreipum óttans.
Annars er íransforseti bara að vinna sína vinnu.. hann er að ná stuðningi meðal múslima svæðisins og ætlar sér að gera Iran að því veldi sem það var hér eitt sinn.. USA er að kikna undan iraq og þá myndast vacuum á svæðinu sem Iran ætlar að nýta sér og hvað er betur til þess fallið en að losna við meinsemd mið austurlanda.. israel ?
![]() |
Ahmadinejad vill frelsa gervalla Palestínu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég var ekki spurður !
4.10.2007 | 07:59
En ef ég mundi fá að velja forseta þá mundi ég vilja halda Ólafi Ragnari sem forseta í lengstu lög ! Glæsilegur fulltrúi lands og þjóðar sem beytir sér fyrir mjög svo gagnlegum málefnum á alþjóðavísu. Hann hefur einnig kjark og þor til þess að stoppa lög frá alþingi sem hefðu verið landi og þjóð til hneisu ef þau hefðu náð fram að ganga.
Ólafur sittu sem lengst í forsetastól, það verður erfitt að finna arftaka þinn.
![]() |
Tæplega 65% vilja Ólaf Ragnar áfram sem forseta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Ömurlegt !
3.10.2007 | 21:33
Ég legg enn og aftur áherslu á að Benitez er með eindæmum leiðinlegur þjálfari. Hann virðist endalaust vera með einhverja útreikninga á vinningslíkum in the long run.. Hann byrjar með eitthvað tilrauna B lið sem var fyrirsjáanlegt að mundi ekki standa sig gegn Marseilles.. Riise á bekknum = klúður á vinstri kanti.. Sissoko = klúður á miðjunni. Crouch = alltaf klúður..
Afhverju er ekki byrjað með Riise Kuyt og svo séð til hvort að kjúklingarnir fái séns ? Crouch á btw aldrei að fá að spila..
Mitt álit á liðinu.. gott lið með eindæmum leiðinlegan stjóra sem mun ekki vinna jack shit á þessu tímabili nema að hann fari að spila með sína sterkustu menn alltaf, í hverjum einasta leik nema að um meiðsli sé að ræða..
Ég frábið mér komment frá mönnum sem hafa ekkert annað að segja en að Rafa viti betur .
![]() |
Góður sigur hjá Chelsea og Celtic en óvænt tap hjá Liverpool |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
FF í ólgusjó
3.10.2007 | 08:05
Þetta kemur ekkert á óvart miðað við framgöngu þeirra í síðustu kosningabáráttu og úr hverju flokkurinn er gerður. Ég get ekki betru séð en að þeir sem styðji FF sé fólk sem kom úr gömlu flokkunum vegna óánægju og vegna þess að á það var ekki hlustað. Þetta fólk fann sér farveg í FF sem tók á móti hverjum sem er opnum örmum svo framarlega að hann styddi stefnuskrá flokksins.
Sigurjónsmálið held ég að hafi vegið töluvert þyngra en stjórn FF vill vera láta.. brotthvarf Magnúsar af þingi.. rasistísk ummæli fyrir kosningar og hjá sumum eftir kosningar, innkoma Kristins H Gunnarssonar ( sem var mér óskiljanleg), Nýtt afl með jón Magnusson í broddi fylkingar var ekki styrkur til FF nema síður sé.
Að sjallarnir séu að veiða formanninn yfir til sín aftur er bara gamalt íhaldsbragð.. sundra og stjórna. Þetta ætti að vera mönnum í FF hvatning til þess að láta ekki undan utanaðkomandi þrýstingi og jafnframt hvatning til þess að gera hreint fyrri sínum dyrum varðandi innflytjendur og þá sem þeir eru viljugir til þess að taka við í flokkinn !
![]() |
Frjálslyndir í ólgusjó |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Deyjandi atvinnugreinar
30.9.2007 | 17:50
Ég var að lesa grein í aftenposten.no í dag sem fékk mig til þess að hugsa um hvaða atvinnugreinar leggjast af á íslandi fyrir árið 2017. Tækniframfarirnar hafa gert nokkrar atvinnugreinar úreltar og hér er listinn minn og aftenpostens um þær atvinnugreinar sem leggjast af bráðlega.
- Plötubúðir. Búðir skífunnar eru sem sagt orðnar úreltar miðað við það að salan á geisladiskum hefur hrapað undanfarinn ár. Ég spái því að þessi tegund búða eins og við þekkjum þær árið 2007 verða horfnar árið 2017.
- Myndavélar með filmur og þar með framköllunarbransinn í heild sinni leggst af. Enginn kaupir vélar með filmur í dag nema einhverjir nostalgíu atvinnuljósmyndarar. Hans Pedersen mun hverfa í þeirri mynd sem við þekkjum hann í dag sem framköllunarþjónustu.
- Heimilistölvan, já þessi elska sem hefur þjónað mér í nær 20 ár mun vera fornaldartæki eftir 10 ár. Kjöltutölvurnar hafa í fyrsta sinn í sögu tölvunnar jafnað sölutölurnar við heimils tölvuna og mun fara fram úr innan skamms. Nýherji, EJS og allir hinir eru þegar farnir að bregðast við. Skoðið bara verslanirnar.. kjöltutölvur eru alls ráðandi í útstillingum í dag..
- Dagblöð, útgáfa pappírsdagblaða mun leggjast af og eftir 10 ár tel ég að ekki verði mikið eftir af þeim nema þá einhverjir auglýsingabæklingar al la bonus og Krónan sem við fáum inn um lúguna.. far vel segi ég og sé ekkert eftir þeim, ég hendi alltaf fréttablaðinu og blaðinu ólesnu oftast nær.
- Gay barir. Þessi tegund bara mun hverfa þar sem fólk sem er samkynhneigt verður algerlega orðið samþykkt í þjóðfélaginu eftir 10 ár. Hommar og lesbíur munu ekki þurfa að opna sína eigin bari til þess að vera samþykkt.. þau eru samþykkt nú þegar nema af einhverjum fornmanninum.
Endilega bætið við þennan lista ef ykkur bíður svo við að horfa. Sumir mundu eflaust setja inn sjómennsku og farmennsku þar sem þessar atvinnugreinar munu verða fylltar útlendingum að mestu innan 10 ára en þær leggjast ekki af enda undirstöðuatvinnugreinar.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Minningarathöfn
28.9.2007 | 22:57
Þeir sem vildu minnast hennar eru velkomnir að vera viðstaddir athöfnina á heimili mínu. Kaffi og öl í krús er á boðstólum..
Greftrun fer fram á Sorpu mánudaginn 8 október. Grefrunin fer fram í kyrrþey.
Þeir sem vilja minnast hennar eru beðnir um að skrifa nokkur orð hér í bloggið !
Bloggar | Breytt 29.9.2007 kl. 00:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)