Bloggfærslur mánaðarins, október 2008

Þegar tveir deila..

.. þá er mikilvægt að senda menn með eitthvað á milli eyrnanna á fundinn.. Darling og Árni Matt í sama herbergi er ávísun á miskilning... 
mbl.is Stefnt á fund með Darling
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

endurspeglast ástandið í umferðinni ?


Ég ók heim í gær eftir vinnu og kíkti við hjá pabba í Hátúni og var umferðin ekkert meiri eða minni en vanalega kl 1630 á föstudegi.. en hún virkaði agressívari.. meira flautað og bílar óku ansi nálægt afturstuðara bílsins fyrir framan.. en.. gerum nú söguna örlítið styttri..

Ég ek laugaveginn í átt að Hlemmi og þegar kemur að ljósunum á Laugarvegi Nóatúni þá er vinstri akrein auð.. komið gult og ég á enn um 100 metra að gatnamótunum.. bílar enn að sligast yfir á rauðu af Nóatúninu inn á laugarveg, en ég er kominn með grænt.. stór jeppi á hægri akrein ekur af stað svo ég gef örlítið í og fer fram úr jeppanum á gatnamótunum.. en þá var enn einn fávitinn á vw golf að reyna að komast yfir þrátt fyrir að umferð í austur og vestur væri lögð af stað.. ég negli niður og hann líka.. við sluppum við árekstur.. en svipurinn sem fíflið sendi mér sagði mér bara eitt. Hann taldi sig vera í fullkomnum rétti eins og hver annar fjárglæframaður í öngstrætum fjármálanna.. fíflið gerði sér ekki grein fyrir því að hann var næstum dauður vegna eigin heimsku og óvarfærni.. ég hefði nefnilega hitt á bílstjórahurðina á miklu afli ef ég hefði ekki haft varann á mér þegar ég ók yfir gatnamótin. 

Annað dæmi gerðist svo þegar ég sótti konuna í vinnuna stuttu síðar.. ég ek Rauðarárstíg í átt að Hlemmi. Við gatnamót laugavegar og Rauðarárstíg var löng röð bíla sem vildi komast inn á laugarveginn í vesturátt.. en autt í austurátt.. ég er að fara í austur svo ég ek meðfram röðinni.. en þá snarast ung stúlka á gráum vw golf fyrir mig, ekki gefið stefnuljós eða neitt.. ég átti eftir um bíllengd í hana þegar henni leiddist þófið í röðinni og ákvað að snara sér yfir á hinn vegahelminginn án þess að líta í spegil hvað þá meir... 
Ok.. gott og vel.. ég nennti ekki einu sinni að flauta á þessa ljósku.. 
Ég ek í átt að Nordica þar sem frúin vinnur og ek af Suðurlandsbraut inn á múlann sem ég man ekki hvað heitir.. en þar snarast BMW fyrir mig.. og ég negli niður enn eina ferðina.. gaurinn horfði beint á mig.. ekta hnakkafífl.. og skildi ekkert í þessari ókurteisi minni að flauta á hann.. nýgreiddan og tanaðan fávitann. Þrisvar sinnum á innan við 3 klst var svínað á mig þar sem ég var í 100 % rétti og á löglegum hraða.. fólk er farið að taka fáranlega sénsa.. enda hefur það kannski ekki neinu að tapa lengur ? eða bílstjórar þýskra bíla séu meiri fífl í umferðinni en aðrir bílstjórar ?

Umferðin segir manni mikið um hugarástand þjóða.. það þarf ekki annað en að bera saman umferð hér á landi og umferð td í Svíþjóð.. mikill munur á umferðarmenningu þessara landa.. Svíum í vil.

Fréttir helgarinnar munu endurspegla hugarástand þjóðarinnar.. þjóðar sem er á barmi örvilnunar og uppgjafar.. Þeir örvænta sem haf a fengið lánin sín tvöfölduð á síðustu vikum og þeir gefast upp sem voru á barmi örvæntingar áður en hrunið mikla kom á fjármálamörkuðum heimsins. Helgin mun verða lögreglunni erfið.



mbl.is Einhver erfiðasta vika í seinni tíð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ohh my darling oh my darling

Það er alkunna að flestir ofmeta sína kunnáttu í ensku.. ég mæli með því að menn sem hafa aftur og aftur gerst sekir um afglöp í starfi eins og Árni Matt.. eigi að hafa með sér túlk í hvert sinn sem hann þarf að tala við erlenda sendimenn..  Besta lausnin væri afsögn.. og það strax í dag.  En það getur sjálftektarblesinn ekki hugsað sér og finnst eflaust fráleit hugmynd enda er hann líkt og flestir sjálftektarmenn veruleikafirrtur og gerspilltur. 

En takk fyrir Árni og Davíð fyrir að hafa sökkt okkur dýpra en þörf var á.  


mbl.is Samtal við Árna réð úrslitum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ha ha Danir eru frábærir

Þvilíkir snillingarGrin  
mbl.is Söfnun fyrir Ísland
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Börsinn upp í Oslo

jæja gott fólk.. það virðist vera líf út í hinum stóra heimi.. Oslo börs byrjaði vel í morgun og var með hækkun upp á 2.24 % 30 mín eftir opnun... 

Nú bíður maður spenntur eftir opnun kauphallarinnar íslensku. 


er innganga í EU krafa verkalýðshreifingarinnar gegn efnahagsaðstoð við bankana

Samkvæmt því sem maður les í norskum vefmiðlum í dag hafa íslensk verkalýðsfélög sett það sem kröfu að ef þau flytji "heim" eignir til styrktar bönkunum þá verði hafnar aðildarviðræður við EU. 

Ég hef ekki orðið var við þessar þreifingar hér í íslenskum fjölmiðlum, enda segir Geir að ekkert sé að og ekkert að gerast í hverju viðtalinu á fætur öðru....

Hvað ætli sé til í þessu ?

http://www.vg.no/nyheter/utenriks/eu/artikkel.php?artid=537725 

 

http://www.reuters.com/article/ousivMolt/idUSTRE4942WD20081006?sp=true 


mbl.is Lokað fyrir viðskipti með bankana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fréttastofa RUV kallar úlfur úlfur

Dagskrá var rofinn kl 23.30 vegna aukafréttatíma.. ég beið spenntur eftir bitastæðum fréttum en.. Geir kom og talaði um ekkert í 5 mínútur og fór svo í nætursnarl.. 

Innihaldið var þetta: Bankarnir ætla að minnka sín umsvif erlendis... umm þetta var augljóst að mundi gerast svo þetta er varla þess virði að rjúfa dagskrá vegna þessa .. sem sagt úlfur úlfur var kallað og ekkert nema lömb sáust


Davíð verður að víkja til að skapa ró í þjóðfélaginu

Amma og afi af báðum foreldrum voru sjallar.. og það gangrýnislausir sjallar.. allt var ömurlegt nema að sjallarnir voru við stjórn.. svona var ég nú alinn upp.. greinilegt að uppeldið hefur klikkað nema að því leiti að föðurafi minn hann Óskar Þórðarson husasmíðameistari vestur á melum þreittist seint að útskýra fyrir mér mikilvægi heiðarleikans og fjálsrar hugsunar.. slíkir sjálfstæðismenn finnast ekki lengur. Það get ég fullyrt.. en þessi fyrirlestur sjálfstæða hugsun fékk mig til að efast um allt.. því það voru alltaf amk tvær hliðar á hverju máli.. 

Ég gerðist alþýðuflokksmaður af hugsjón..  

En ég sá að DO var ekki heiðarlegur maður mjög snemma.. óbilgirnin, hefnigirnin, langdrægnin var of augljós nema fyrir fólk sem kýs sjálfstæðisflokkinn enda kann það fólk ekki að meta sjálfstæða hugsun.. 

DO verður að víkja svo ró færist yfir málin hér á landi, með hann í Svörtuloftum mun vera efast um allar gerðir Geirs Haarde.. með réttu kannski. Og ríkisstjórnin öll og þar með Samfylkingin verður dreginn niður í svað sjalla... og framsóknar.. 

Ég vill að Samfylkingin geri það að ásteitingarsteini að DO verði látinn víkja sem Seðlabankastjóri.. ég vil í framhaldinu BANNA það að fyrrverandi alþingismenn fái há embætti á vegum ríkisins. Ferill DO ætti að duga sem röksemd gegn slíkum ráðahag.  Það er nóg af fyrirtækjum hérlendis til að taka við afdönkuðum stjórnmálamönnum.. merkilegt samt að þingmenn og ráðherrar frjálshyggjunar sækja svo fast í ríkisjötuna.. segja eitt en meina annað.. helvítis pakk allt saman.


Ég er búinn að gefa samfylkinguna upp á bátinn

Síðustu atburðir hér innanlands hafa tekið af allan vafa í mínum huga. Samfylkingin stendur hjá og horfir á sjálftektarflokkinn rústa íslensku efnahagslífi með góðri hjálp Krabbameinsins í Svörtuloftum.

Stefnuræða Geirs Huglausa var um akkurat ekki neitt.. mannaulinn gat tuðað í hvað 20 mínútur ? án þess að segja nokkurn skapaðan hlut.. sem að vísu bendir til smá hæfileika en sá hæfileiki er því miður gagnslaus.. nema að maður sé forsætisráðherra í ríkisstjórn engra aðgerða og engra áætlana, nema ef vera skyldi ef Davíð Oddson segi henni að gera eitthvað, þá er gott að geta nýtt hæfileikan í gangslausu þvaðri um ekkert. 

Geir Haarde er til skammar og hann er orðinn þjóðinni skeinuhættur í sínum afglapaskap.

Samfylkingin þegir og gerir ekki nokkurn skapaða hlut heldur, og það er ljóst að meðan ISG er fjarverandi þá vita limirnir ekkert hvernig þeir eiga að dansa .. Samfó er höfuðlaus her á meðan ISG er í burtu.. og þegar hún er við.. sem er ekki oft.. þá gerist ekkert meira en hjá Geir Haarde.. 

Þessi stjórn mun hverfa í minningunni sem stjórnin sem gerði ekki neitt !  Og.. hvað á ég svo að kjósa næst ? 

VG ?  Þar ráða ríkjum óánægjuraddir sem aldrei geta verið sammála einu né neinu..

FF ?  Ekki séns, þetta lið er til meiri skammar en sjálftektarflokkurinn.. sækir atkvæði til rasista þegar kvótatuðið dugði ekki lengur.. lýðskrumarameistarar.

Framsókn ?? Nei Guðni er risaeðla og þessi flokkur er sekari en sjallarnir í sjálftektinni..

Ég kýs sennilega ekki neitt... djöfuls aular allt saman á þessu alþingi. 

 

 


mbl.is Glitnisaðgerð ekki endapunktur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gamli sáttmáli

Í nafni föður ok sonar ok heilags anda.
Var þetta játað ok samþykt af öllum almúga á Íslandi á Alþingi með lófataki:
At vér bjóðum (virðuligum herra) Hákoni konungi hinum kórónaða vára þjónustu undir þá grein laganna,
er samþykt er milli konungdómsins ok þegnanna, þeirra er landit byggja.
Er sú hin fyrsta grein, at vér viljum gjalda konungi skatt, ok þingfararkaup slíkt sem lögbók váttar,
ok alla þegnskyldu, svá framt sem haldin er við oss þau heit, sem í móti skattinum var játað.
Utanstefningar viljum vér aungvar hafa, utan þeir menn, sem dæmdir verða af várum mönnum á Alþingi í
burt af landinu.
Item at íslenzkir sé lögmenn og sýslumenn á landi váru af þeirra ættum, sem at fornu hafa goðorðin upp
gefit.
Item at sex hafskip gangi á hverju ári til landsins forfallalaust.
Erfðir skulu ok upp gefast fyrir íslenzkum mönnum í Noregi, hversu lengi sem staðið hafa, þegar réttir
arfar koma til eðr þeirra umboðsmenn.
Landaurar skulu upp gefast.
Slíkan rétt skulu hafa íslenzkir menn í Noregi sem þeir hafa beztan haft.
Item at konungr láti oss ná íslenzkum lögum ok friði eptir því sem lögbók váttar ok hann hefir boðið
í sínum bréfum, (sem guð gefr honum framast afl til).
Jarl viljum vér hafa yfir oss meðan hann heldr trúnað við yðr, en frið við oss.
Halda skulum vér ok vorir arfar allan trúnað við yðr meðan þér ok yðrir arfar halda við oss þessa sættargerð,
en lausir, ef rofin verðr af yðvarri hálfu at beztu manna yfirsýn.
Anno M. ijc lxiij.
Hér eptir er eiðr Íslendinga.
Til þess legg ek hönd á helga bók ok því skýt ek til guðs at ek sver herra Hákoni konungi ok Magnúsi konungi
land ok þegna ok æfinlegan skatt með slíkri skipan ok máldaga sem nú erum vér á sáttir orðnir ok sáttmálsbréf
várt váttar.
Guð sé mér hollr, ef ek satt segi, gramr ef ek lýg.

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband