Færsluflokkur: Bloggar

með kveðju frá liverpoolmanni


mbl.is Chelsea missti dýrmæt stig gegn Fulham
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

nokkuð gamaldags lög..

Ég hef bara eitt um þessi lög að segja.. þau eru aulaleg í ljósi þess að íslenska er ekki einu sinni skilgreind sem ríkisstungumál á íslandi.

góðar stundir 


mbl.is Íslenskupróf skilyrði fyrir ríkisborgararétti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég man enn síðasta rafmagnsreikninginn minn í noregi 2002

Ég man enn síðasta rafmagnsreikninginn minn í noregi 2002.. hann hljóðaði upp á 6700 NOK fyrir 60 daga notkun í nóv, des árið 2002.. tveir í heimili og 85 fm íbúð.. 90 % af þessu var eflaust upphitun.. dýrt var það maður.. á móti kemur að yfir sumarið er rafmagnsnotkun í algeru lágmarki í noregi. húsið ekki upphitað frá april fram í lok september byrjun október.

Rafmagn og heita vatnið eru stærstu plúsarnir við ísland.. síðan hallar undan fæti í samanburðinum við önnur lönd...  

 


mbl.is Rafmagnið ódýrast á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

jáhá.. lesbískur alkóhólisti..

.. sem sagt ef maður vill verða 109 ára þá á maður að vera lesbískur alkóhólisti... en ég held að ég láti mér nægja að verða 99 ára eins og amma gamla og vera bara gagnkynhneigður gin-drykkjumaður.. Cool

 


mbl.is Þakkaði langlífið koníaki og skírlífi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

hér eru afleiðingarnar.. !! myndbandsefni !


mbl.is Notuðu peningamarkaðssjóði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

NRK 1 kl 20.30 í kvöld

http://www.nrk.no/programmer/tv/brennpunkt/1.6322990

Jón Ásgeir tekinn fyrir á Brennpunkt í NRK í kvöld kl 20.30 íslenskum tíma !!  


mbl.is Efast um að Davíð eigi við sig
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

misritun blaðamanns ?

60 milljarðar norskra króna er um 1200 milljarðar en ekki 120 milljarðar eins og segir í fréttinni...  1 NOK er um 20 kall en ekki 2 kr.

Bara svona smá tuð hjá mér..  


mbl.is Aukinn stuðningur við útflutningsfyrirtæki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heppin mörgæs, margmiðlun


7.8 eða 5.5 ??

ég skil ekki alveg  hvernig þeir fá út 7.8 því ég sé ekkert um þennan jarðskjálfta neinstaðar.. svo ég fór á bandarísku jarðskjálftastofnunina og fann þetta :

http://earthquake.usgs.gov/eqcenter/recenteqsww/Quakes/us2008zlby.php

hér segir 5.5 á richter.. sem er að ég held um 2000 sinnum minni skjálfti en 7.8.. sem einnig útskýrir afhverju ég sá ekki staf um þennan skjálfta á netinu í dag.. nema á mbl.is..

 

 


mbl.is Jarðskjálfti 7,5 í Indónesíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

innrás yfirvofandi

Núna hefur Olmert gefið í raun fyrirmæli um hreina innrás á Gasa, fjarlægja alla þá sem eru ekki ísraelum að skapi og nokkra tugi tilviðbótar.. just in case. .. nokkur hundruð munu hverfa í þessum hildarleik.. því heiminum er í raun skítsama hvernig israelar haga sér.. því það er kreppa og það vita ísralear.. vesturlandabúar hafa meiri áhyggjur af hækkandi bjórverði en hernaðarátökum í palestínu, enda allir hundleiðir á þeim.. 

Sennilega hafi flestir ekki tekið eftir því að isralear stöðvuðu matarsendingar inn á Gasa fyrir nokkru síðan.. loka fyrir vatnið á versta tíma.. allt gert til að espa upp Hamas, sem að sjálfsögðu brugðust við ofríkinu.. en þar sem vestrænir fjölmiðlar segja einingis frá öðrum partinum.. þá kemur sannleikurinn seint í ljós.  Innrás ísraela verður réttlætt með því að israel býr við stöðuga ógna frá Gasa, hvernig svo sem hægt er að fá stuðning við þann málflutning.

 

 


mbl.is Segir frið á Gasa rofinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband