Bloggfærslur mánaðarins, september 2008

Sem betur fer.. spáði ég ekki rétt í dag.

ég spáði slæmum úrslitum í dag.. mest vegna oftrúar á norska liðinu og vantrúar á því íslenska.

Hér er einn af mínum spádómum fyrr í vikunni :

http://haukurn.blog.is/blog/haukurn/entry/632943/#comments 

Sem vetur fer þá hafði ég ekki rétt fyrir mér og því miður þá gengum við ekki á lagið og unnum þá norsku á heimavelli sem hefði verið frábær byrjun á þessu móti.

Í fyrri hálfleik fannst mér íslenska liðið vera með allt á hælunum en þó.. þeir héldu í við nojarana og stóðust álagið fyrstu 10 mínúturnar.. sme kom mér á óvart því nojarar eru þekktir fyrir kröftugar byrjanir á sínum leikjum.. bæði í fyrri og seinni hálfleik.  en vandi nojarar er að þeir eiga erfitt með að vinna sig inn í leiki sem hafa tapast niður eins og sást vel í seinni hálfleik í kvöld. 

Góður leikur okkar manna ... en ég SKIL EKKI AFHVERJU VEIGAR PÁLL FÆR SVONA FÁA SÉNSA, hann er þrátt fyrir allt besti leikmaður norsku deildarinnar..  með sinni fyrstu snertingu því sem næst þá hefði hann getað skotið okkur í 2-3.. en því miður þá fór gott skot hans í stöng.  Skammastu þín Óli fyrir að nota ekki þennan mann meira.

Glæsilegt og nú á bara að láta kné fylgja kviði og taka skota á miðvikudaginn.  


mbl.is Frábær úrslit í Osló
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

núna skammast ég mín fyrir landið mitt.

útlendingastofnun fær mig stundum til þess að skammast mín fyrir landið mitt.  Ég hefaldrei skilið afhverju ríkisstofnanir þurfa að vera svona kaldar og ómanneskjulegar.. og það þrátt fyrir yfirmann stofnunarinnar sé vélmenni og þurs, BB. 

Það er ekki farið að sjatna eftir Ramses þegar þetta skellur á.  Takið fingurnar úr rassgatinu á ykkur niðri í Skógarhlíð og skoðið aðstæður mannsins.. gersamlega óhæf stofnun. 

Ég á eftir að fara með pappíra konu minnar og er kominn 2 vikur fram yfir, kannski verður henni bara vísað úr landi ??  


mbl.is Kom 17 ára – sendur úr landi 23 ára
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Norskir landsliðsmenn láta reyna á kunnáttu sína í íslensku

Norskir landsliðsmenn spreyta sig á íslensku en virðast helst kunna orð sem bannað er að segja í fjölmiðlum..   

 

http://atvs.vg.no/player/?id=18335

 


Transnistria hélt þjóðhátiðardaginn hátíðlegan í gær

Transnistria hélt þjóðhátiðardaginn hátíðlegan í gær.. dagsatt en samt er landi hvergi skráð sem sjálfstætt land og finnst ekki á neinum kortum nema þá Transnistriskum og Rússneskum kortum.

En þetta er land á bökkum Dnépr milli Ukraínu og Moldóvíu. þarna búa um 540.000 manns.. þrælvopnaðir með um 20.000 tonn af skotfærum frá gamla sovét..

Það fer vart á milli mála ef maður skoðar hvað er að gerast í austur evrópu þessa dagana að Rússar eru í útþenslu og ætla sér stóra hluti í þessum heimshluta.. yugo Ossetia, Abkasía, austur ukraína.. og þessi landspilda í Vestur Ukraínu og austur moldóvíu. 

 

http://www.dagbladet.no/art/russland/historie/3291414/

 

http://en.wikipedia.org/wiki/Transnistria 


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband