Bloggfærslur mánaðarins, september 2008
Góð úrslit í kvöld
17.9.2008 | 21:16
Man. Utd og Arsenal bæði með jafntefli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Thailenskt heilbrigðiskerfi betra en það íslenska ?
13.9.2008 | 20:28
Ég held bara að ég geti svarað þessu játandi.. þeir standa sig betur og hafa yfir að ráða mjög hæfu starfsfólki eins og sænska læknateymið komst að sem fór á áfallasvæðið eftir flóðbylgjuna miklu um árið. Svíarnir héldu að þeir ættu að stjórna og kenna thailendingum en þeir komust að því að þeir voru bara fyrir því að þeir thailensku kunnu mun betur til verka á svona áfallasvæði en þeir sænsku. Svíarnir sögðu í viðtali að þeir efuðust um að sænskt heilbrigðiskerfi hefði getað afrekað það sama og það thailenska gerði eftir flóðbylgjuna.
Allir í thailandi fá heilbrigðisþjónustu, án tillits til tekna eða status í þjóðfélaginu. Ef þú ert fátækur og tekjulaus eða tekjulítill kosta lyfin ekki neitt... kannski gætum við lært eitthvað af þeim ?
Til Taílands á sjúkrahús | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Leikurinn að byrja og Skari er klár
13.9.2008 | 11:43
Ég er einn af þessum sem harðneita að borga þúsundir króna fyrir að horfa á knattspyrnu erlendis með áskrift að Stöð 2 sport 2 eða hvað þetta stuff heitir svo ég sit bara hér heima og nýt leiksins í gegnum netið.. frítt.
Ég spái mínum mönnum að sjálfsögðu sigri í þessum leik 2-1 og mun nýji maður MU Berbatov ekki gera neinar rósir í dag heldur þvælast fyrir félögum sínum og gera illt verra.. það kann ekki góðri lukku að stýra að nota nýjan mann í svona mikilvægum leik.. kannski sörinn sé farinn að förlast í fræðunum ?
sögusagnir segja að það sé farið að hitna undir Rafa, ekki græt ég það en ég mundi frekar að það væri sjóðheitt undir þessum andskotans bandaríkjamönnum sem eiga klúbbinn í dag.. megi þeir brenna í texas að eilífu.
3 mín í leik.. má ekki vera að meiru.. ciao
it takes one to know one..
13.9.2008 | 00:58
Carl Lewis: Heimskulegt að draga ekki árangur Bolt í efa | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
til hamingju eyjamenn
12.9.2008 | 22:19
Eyjamenn fögnuðu efsta sætinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
hmm og danska löggan er þrælvopnuð !!
12.9.2008 | 19:41
Það er athyglisvert að rýna í þessa frétt því að umræðan hér heima er meiri og meiri vopnabúnaður fyrir lögreglumenn landsins vegna mikils ofbeldis gegn þeim.. Danska lögreglan er þrælvopnuð með skammbyssur á sér alltaf og hafa haglabyssur og vélbyssur í bílunum ásam úðabrúsum kylfum og ég veit ekki hvað...
Greinilegt að meiri vopnabúnaður MINNKAR EKKI ofbeldi gagnvart lögreglunni.
Danska lögreglan beitt ofbeldi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
Hann Árni Matt er ömurlegur
11.9.2008 | 22:40
Hann Árni Matt er ömurlegur sem ráðherra og persóna.. hann er að verða persónugerfingur sjálftektarflokksins í sinni verstu mynd.
Hvernig í andskotanum dettur mannfýlunni þetta í hug ? Fara í mál við ljósmæður sem eru að berjast fyrir RÉTTMÆTUM LAUNUM !! Svona gerir enginn nema aumasta manntegund á þessu landi.. sjálftektarfólkið í Valhöll !!
Svei og svei
Ljósmæður: Uppsagnir löglegar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Klukkaður.. klikkaður ?
10.9.2008 | 21:33
Addi klukkaði mig í kvöld og brást ég skjótt við.
Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina.
Kjötiðnaður
verslunarstörf
Fiskvinnsla
Sölumennska
Fjórar bíómyndir sem ég held upp á.
Apocalypse now, uncut byggð á sögu joseph conrad heart of darkness
Saving private Ryan
Dancing with wolfes
Highlander 1 fæ þessa lánaða frá Adda, þetta er mynd sem gleymist seint.
Fjórir staðir sem ég hef búið á.
Ljusdal Sverige
Reykjavík
Bolungarvík
Skien norge
Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar:
náttúrulífsþættir hverskonar (ég horfi mest á discovery og þess háttar )
Næturvaktin
Silfur Egils
Fréttir
Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum :
Danmörk.. nokkrum sinnum
Thailand, einu sinni en er að fara aftur með familíuna
England/skotland ..mörgum sinnum, oftast vegna boltans
Island.. nær allt landið.
Fjórar síður sem ég skoða daglega fyrir utan blogg :
mbl.is
forskning.no
Vg.no
dagbladet.no
Fernt sem ég held uppá matarkyns:
Tom yum pla
Pad ped
Rib Eye a la Oskar Þ.
mest allt fiskikyns
Fjórar bækur sem ég hef lesið oft:
"Percival Keene" las þetta listaverk sem er skrifað á miðri 18 öld í tætlur sem unglingur
"Heart of Darkness" eftir joseph Conrad
"Hersveit hinna fordæmdu" eftir Sven Hazel, las hana í tætlur sem unglingur
"Heygðu mitt hjarta við undað hné" haffði mikil áhrif á mig og mínar lífsskoðanir.
Fjórir bloggarar sem ég ætla að klukka
Heidi Strand
trukkalessan
Gísli Hjálmars
Fjarki
Fjórir staðir sem ég vildi helst vera á núna :
Thailand
Oslo
Vietnam
shanghai
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Stake and play, Umsögn um staðinn.
7.9.2008 | 11:08
Ég fór og horfði á landsleikinn milli íslands og noregs á Stake and play íþróttapöbbnum hans Geira í Goldfinger á Grensásvegi.
Við fyrstu sýn þá virkar hann töff og er talsvert lagt í stólana sýndist mér og margir flennistórir flatskjáir út um allt svo þú ert aldrei úr sjónfæri við leikinn.. nema kannski á dollunni.
Ég var kominn 30 mín fyrir leik, settist í innri salinn við barinn og bað um bjór og matseðil.
Þjónustustúlkan var vingjarnleg og vildi allt fyrir gestina gera en vantaði fágun og reynslu sem eflaust kemur fljótlega hjá henni. Aðrir þjónar voru svipuðu reki, um eða undir 20 ára og ekki með mikla reynslu.
Svo kom hamborgarinn, 1390 kall kostaði hann . borgarinn var kaldur, og brauðið farið að harðna aðeins svo mig grunar að ég hafi fengið mat sem einhver annar átti að fá en beilað á matnum og látið sig hverfa, því ég beið ekki nema í 5-10 mín eftir borgaranum og fékk hann kaldan sem sagt. Ágætlega bragðgóður og glóðarsteiktur en meðlætið var fyrir neðan allar hellur. Frönskurnar voru uppsópið úr steikarkörfunni.. 30 % af þeim voru stubbar eða hörð fita í köggli.. Ég nennti ekki að kvarta því stúlkan var svo elskuleg þegar hún spurði mig hvernig mér líkaði maturinn.. ég svaraði með brosi og vandlætingar handahreifingu, efast um að hún hafi skilið þá fáguðu handahreifingu.
Bjórinn var kaldur og góður og runnu 6 niður yfir leiknum...
Þá er komið að aðalatriðinu.. hvernig er að fylgjast með leik þarna ?
Hljómburðurinn er alveg hörmung og þótt hátt væri stillt, alltof hátt miðað við hljómburð þá var mjög erfitt að fylgjast með umræðum eða lýsingum í leiknum.. allt hrúgaðist saman í einn hávaðapakka. Þetta verður Geiri að laga, ég gef staðnum einn séns enn og ef hljómburðurinn verður eins.. og ef matuinn verður af sömu gæðum og í gær þá fer ég aldrei, ALDREI aftur á þennan stað.
Myndgæðin eru fyrsta flokks.. umgjörðin á staðnum er hinsvegar 3 flokks. Þeir sem hafa séð O´Leary´s í skandinavíu þekkja sportspöbba sem eru fyrsta flokks.. myndgæði, hljómgæði, matgæði og góð umgjörð. Ef Geiri hefði tekið þá staði sér til fyrirmyndar þá hafði hann skorað mikið hærra..
Staðurinn fær eftir mína fyrstu heimsókn.. 2 stjörnur af 5.
Kebabhúsið við hliðina fær 4 stjörnur. Í ofangreindum atriðum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
athyglisvert..
7.9.2008 | 00:06
Vænir dilkar af Auðkúluheiði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)