Færsluflokkur: Enski boltinn

Spilastíll Liverpool

Spilastíll Liverpool hefur farið í taugarnar á mér undanfarin 6-7 ár eða svo. Með komu Rafa þá batnaði hann örlítið en í raun er þetta sami skotgrafarspilastíllinn og fyrirrennari hans kom með.  Ég hef reyndar verið latur undanfarin 2 ár við það áð tuða um þennan spilastíl og ekki hjálpaði það að ég er í ævilöngubanni á www.liverpool.is þar sem þröngsýnin ræður ríkjum og gagnrýni er bönnuð að mestu.

en mér barst í hendur pistill frá einum "brilliant liverpool aðdáenda" sem stundum kallar sig the dawg, röddin í austri.. en ég kalla hann gjammið í austri.  Ég fékk leyfir hjá honum til þess að birta pistilinn hér og er það mér sönn ánægja.

Björgunarsveitarmenn frá björgunarsveitum Slysavarafélagsins Landsbjargar

Eftir að hafa legið í mikilli lægð og ekki látið mikið heyra í mér hérna inni finn ég mig knúinn til að ausa úr skálum reiði minnar. 

Þeir sem annað hvort eru viðkvæmir fyrir gagnrýni á Liverpool liðið sitt eða vilja ekki heyra neitt neikvætt um Rafa Benitez, vinsamlegast hættið að lesa á næsta punkti.

Nú hefur drama queen-ið Rafael Benitez náð að grenja út pening til leikmannakaupa í janúarglugganum til að styrkja liðið í baráttunni og miðað við frammistöðu liðsins í síðustu þremur leikjum (þ.m.t. Man City leikinn í dag).  Hann fékk sína ósk heitasta eftir að hafa mætt á blaðamannafund í mikilli fýlu og tókst vel upp í að leika páfagauk á þeim fundi þar sem hann sagði sömu setninguna allan tímann. 

Sl. sumar fékk hann töluverðar upphæðir til að kaupa leikmenn og hæst ber að nefna Fernando Torres (sem að mínu mati eru bestu kaup Liverpool síðan Kenny Dalglish var keyptur til liðsins).  Síðan fáum við Voronin (frítt) og tvo svokallaða kantmenn (Babel/Benayoun) sem í rauninni geta spilað mismunandi stöður og verðmiðinn á þessum tveimur var himinn hár.  Það er hægt að réttlæta verðmiðann að því leyti að um tvo kantmenn er að ræða og við vorum að brenna inni með að finna einhverja á kantinn. 

En nú hef ég sagt orðið sem farið að hljóma eins og dónyrði eða eitthvað slæmt þegar ég heyri það, kantmaður/kantmenn.  Hvað í fjáranum ertu að reyna, Rafael Benitez?!?!?!  Ég bara á mjög erfitt með að segja eitthvað gott um Benitez þessa stundina.  Það er jú hann sem kaupir leikmennina, velur liðið, skipar leikmönnum fyrir og peppar upp og útkoman er alltaf hans á endanum. 

Þegar horft er yfir þessa 3 leiki yfir jólatörnina hjá liðinu að þá vinnum við stórsigur gegn Portsmouth, sigur á Derby og jafntefli gegn Man City úti.  Það er virkilega góður árangur að fara í gegnum jólin með 7 stig af 9 mögulegum og í raun pælir enginn í því hvernig liðið hafði spilað til að verðskulda öll þessi stig eftirá, en þeir sem horfðu á leikina sjá væntanlega annað í spilunum og er ég einn af þeim.

Leikurinn gegn Man City í dag var skólabókardæmi um hvernig Liverpool liðið spilar og ætti í raun að vera hlutur sem Rafa ætti að skoða nánar í janúar.  Það er akkúrat EKKERT kantspil hjá Liverpool!  Það er hnoð upp miðjuna og reynt að dröslast í gegnum miðja vörnina þar sem hún er þéttust og þannig að reyna að skora mörkin.  Leikur LFC gegn Scums um daginn var t.d. annað gott dæmi um hugmyndaleysi þegar kemur að sóknarleik liðsins. 

Í dag gegn Man City var það svo skýrt að Harry Kewell og Benayoun voru engan veginn að höndla það að fara upp kantana og teygja á vörn City liðsins, meira að segja tókst þeim að hnoða sér upp miðja miðjuna oft á tíðum (Benayoun aðallega).  Ekki beint það sem maður vil sjá kantmenn liðsins gera enda ekki kallaðir kantmenn fyrir ekki neitt.  Þar sem rafmagnsleysi olli því að maður missti af góðum kafla af leiknum að þá sá ég ekki þegar Babel kom inná en um leið og hann kom inná sá maður hann fara 2-3x upp kantinn og opna verulega vörn City og skapa hættu sem færði fjör í leikinn. Aurelio kom meira að segja með yfirhlaup (overlap) upp úr bakvarðarstöðunni í eitt skiptið og olli þetta miklu uppnámi í vörn City.  Þetta gat maður séð í byrjun tímabilsins og var í raun rót árangur liðsins í byrjun en svo hætti þetta.  Ég meina, er Benitez eitthvað að leggja aðrar áherslur á leikstíl liðsins og vill hnoð upp miðju í staðinn fyrir kantspil??

Síðan kom "Liverpool-vírusinn" þekkti upp í Babel og tók það hann svona 5-10 mínútur til virka og þá hætti hann að reyna að fara upp kantinn og fór að hnoða sér upp miðjuna!  Ég meina, er leikkerfi þjálfarans þannig að hnoð í gegnum miðjuna sé málið eða eru leikmenn ekki að hlusta á þjálfarann og hnoða sér upp miðjuna eða var ég að horfa á vitlausan leik?!?!?!  Ekki einu sinni björgunarsveitarmenn frá björgunarsveitum Slysavarafélagsins Landsbjargar gætu bjargað Liverpool í leit sinni að topp 4 sæti ef þetta leikskipulag heldur áfram!

Ég sá leik Tottenham vs. Reading (6-4) og var það skólabókardæmi um hvernig á að spila sóknarleik og að sama skapi skólabókardæmi um hvernig maður á ekki að spila vörn.  Ég myndi frekar vilja að LFC fái á sig 4-5 mörk í leik á meðan þeir skora fleiri en að vera með svona frústrerandi þvælu leik eftir leik þar sem sóknarleikurinn er eins litlaus og vatnsglas. 

Ég er að sjálfsögðu ekkert að byrja á "ÚT MEÐ BENITEZ" öskrið fræga en ég ætla að gefa honum séns í janúar til að leiðrétta eftirtalin mistök sem ég tel hann vera að gera:

1) Hætta þessari róteringu á liðinu eða minnka hana niður í eðlilegt magn fyrir hvern leik.  Hver í raun róterar 4-7 leikmönnum fyrir hvern og einn einasta leik án þess að vera eitthvað ruglaður???  Ef leikmenn eru svona svakalega þreyttir eftir einn leik þá hlýtur Rafa að þurfa að taka því aðeins rólegra á æfingasvæðinu því eitthvað verulega skrýtið er þar í gangi. 

2) Kaupa þess kantmenn sem þarf til að virkja kantspilið eða eitthvað slaka á í að plana 90.mínútna leiki fyrirfram eins og hann oft virðist gera.  Chelsea hefur kantmenn, Scums líka og Arsenal spilar sem ein liðsheild hvort sem um varalið eða aðallið sé að ræða.  Hjá Liverpool er panic þegar liðið lendir á móti liði sem pakkar í vörn og þá koma kantmenn og overlap frá bakvörðum sér vel til góða. 

3) Spurning hvernig þjálfarinn er að peppa upp liðið fyrir leiki því það virkar oft á tíðum hreint út sagt alveg út á túni sama hvað er í húfi.  OK, 3 leikir á stuttum tíma yfir hátíðina + annar leikur á nýársdag og FA Bikarinn gegn Luton fljótlega eftir það en öll önnur lið eru í sama pakkanum.  Það er ljóst að aðstoðarmaðurinn Paco hafi tekið mikið með sér þegar hann fór og það gat er alls ekki búið að fylla upp í. 


Ég vil gefa Rafa sénsinn fram undir sumar og sjá hvernig kaup hans verða í janúar og hvernig endirinn á tímabilinu verður áður en ég fer að hrópa á uppsögn hans.  Ég samt er virkilega óhress með spilamennsku liðsins undanfarna þrjá leiki þrátt fyrir 7 stig af 9 mögulegum.  Það þarf virkilega að mótívera þennan hóp sem við höfum því það er ekki hægt að halda sér í topp 4 með svona spilamennsku til lengri tíma.  Deildin er orðin sterkari en áður, fleiri erlendir millar hafa keypt lið og geta styrkt sig duglega í janúar og hent okkur neðar í töflu. 


Rafa er bjartsýnn.. en ekki Skari.

Dagskráin um áramótin í enska boltanum er þétt og venjulega þá stendur það lið uppi sem sigurvegari um vorið sem er efst 2 janúar á hverju tímabili. Ef Benitez ætlar að gera Liverpool að meisturum í vor þá verður hann fá 12 stig út úr þessum leikjum og vona að MU, Arsenal og chelsea tapi minnst 6-10 stigum hvert, helst meira. líkurnar á því eru ekki miklar en dagskrá Liverpool er Benitez hagstæð ef hann er þá búinn að læra á ensku deildina.. sem ekki lítur út fyrir miðað við stöðu liðsins.  Hér fyrir neðan eru leikirnar 4 sem liverpool mun spila á 10 dögum..

22 des
Liverpool - Portsmouth

26 des
Derby - Liverpool

30 des
Manchester City - Liverpool

2 jan
Liverpool - Wigan

Ef Benitez nær ekki fullu húsi út úr þessum leikjum á hann að segja af sér strax í janúar því þá hefur honum mistekist ætlunarverk sitt þetta tímabilið.. þ.e ef hann hefur einhvern metnað fyrir hönd Liverpool.

 


mbl.is Benítez: Bjartsýnn á að Gerrard og Torres verði með
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Benni karlinn

Ég er algerlega ósammála Benitez í því að dómarinn átti að grípa inn í atburðarrásina fyrr til að bjarga Peter Crouch frá rauða spjaldinu.  PC getur sjálfum sér um kennt og engum öðrum og Benitez ætti að sjá sóma sinn í því að selja þennan leikmann 1 janúar til fyrsta félagsins sem sýnir áhuga á honum.

Leikurinn í heild var leiðinlegur á að horfa en úrslitin voru sanngjörn. sóknir Liverpool voru máttlausar og ómarkvissar og ekki furða þegar leikmenn eins og Peter Crouch eru notaðir gegn alvöruliði eins og Chelsea vissulega er.


mbl.is Benítez: Dómarinn átti að grípa inní
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mjög sanngjörn úrslit !!

Leikur Liverpool var vægast sagt ekki góður.. eiginlega bara lélegur !!  "skipulagsnillingurinn" Rafa lagði upp með miðjuhnoð og enga vængmenn.. allavega var ekki spilað mikið upp kantana í þessum leik.. eða var kannski Liverpool yfirspilað af stórliði Besiktas ?  Martöðin frá Marseilles er að endurtaka sig og tel ég nokkuð ljóst að Rafael sé ekki eins góður stjóri og menn vilja vera láta.. hann rak aðstoðarþjálfara sinn til 12 ára um daginn og síðan þá hefur liðiuð verið að spila hálfhjartað og óskipulega.. kannski var heilinn og motorinn bak við velgengni Rafa, Paco ? 

Eitt er ljóst, Rafa mun ekki endurtaka leikinn frá því í Istanbul 2005.. og hann mun aldrei nokkurn tíma komast í námunda við þann titill sem skiptir mestu máli , Enska meistaratitilinn !  Núna er þetta bara spurning um hvenær en ekki hvort Rafa verði látinn fara !

bottom line.. þetta voru sanngjörn úrslit !


mbl.is Liverpool lá í Istanbul
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Blaðran sprunginn ?

Jæja það kom að því að blaðran mundi springa hjá Abrahamovitch..

Það er sjónarsviptir af þessum þjálfara og nú verður gaman að sjá í hvað chelskí er spunnið.. mun liðið spila áfram af sama krafti.. mun það leysast upp.. hver tekur við ?

Ég hallast að því að Cappello taki við chelskí og verði þar í um 18 mánuði..

Verð að viðurkenna að þessar fréttir kættu mig töluvert og græt ég ekki að Chelskí muni blæða í framtíðinni eftir framgöngu þeirra á leikmannamarkaði eftir tilkomu rússans um árið.. verðbólga á leikmannamarkaði heimsins er mest tilkomið vegna þess að rússinn fékk til sín leikmenn á hvaða bullverði sem er og markaðurinn fylgdi eftir eins og þægur krakki.
mbl.is José Mourinho hættir sem knattspyrnustjóri Chelsea
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband