Færsluflokkur: Samgöngur
íslensk vegagerð vs norsk vegagerð
21.2.2009 | 16:42
Ég rakst á grein í Aftenposten.no í dag sem fjallar um norska vegagerð . það var þannig að nokkrir norskir þingmenn voru á ferðalagi um önnur norðurlönd til að kynna norska vegagerð fyrir kollegum sínum og urðu þeir aðhláturefni í svíðjóð fyrir það hvernig norðmenn stjórna vegagerð.. en svíarnir hlógu að þeim og sögðu við frændur sína að það væri ekkert skrítið þótt norsk vegagerð væri ein sú dýrasta í heimi og einnig ein sú slakasta á norðurlöndum á meðan henni er miðstýrt af stjórnmálamönnum.. vegagerð í noregi væri pólitísk og vegir lagðir þar sem mest pólitískt gildi er og gefa mest atkvæði..
Svíar lögðu til minni ríkissafskipti og minni smámunasemi í stjórnmálum og heldur skapa heildstæða vegagerð..
Er einhver lesenda sem kannast við þetta norska módel ? göng hér og þar sem ekkert eða lítið gildi hafa fyrir þjóðfélagið í heild en skapa góð atkvæði fyrir flokk samgönguráðherra..
Íslendingar virðast alltaf sækja í versta módel sem hugsast getur .. öfgarnir eru í báðar áttir.. náðum í það versta úr kapitalismanum og það setti okkur á hausinn.. sóttum það versta til miðstýringarinnar og það hélt þjóðinni í fjötrum..
En vegagerð getum við ekki lært af norðmönnum.. við þurfum að sækja aðeins austar til þess enda eru sænskir vegir til fyrirmyndar á norðurlöndum.
En hér er greinin :
http://www.aftenposten.no/nyheter/iriks/politikk/article2939463.ece
Samgöngur | Breytt s.d. kl. 17:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Volvo 940 station vs Renault Modus ,crashtest..
11.1.2009 | 13:43
Þetta er athyglisvert myndband sem ég tók eftir á norskri bílasíðu á netflakki í morgunn.
hér testa þeir volvo 940 station á móti Renault Modus. volvoinn er bæði stærri og ..sterkari ?
niðurstaðan kemur eflaust flestum á óvart.. en skoðið þetta athyglisverða myndband og dæmið sjálf.
Lítil saga frá Þorlák..
24.12.2008 | 10:41
Þorláksmessukvöld
Ég var frekar rólegur í gær á heilögum Þorlák.. en átti erindi í bæinn um kl 21.00 í gærkveldi.
Laugavegurinn var stappaður af fólki og bílum engin komst áfram ef þeir voru í bíl. Þeir sem voru fótgangandi gekk betur.
Ég ók því Grettisgötuna og lenti þar í 30 mínútna stoppi vegna umferðar sem ekkert komst, hvorki áfram né afturábak.. eftir 30 mín komst ég lokst inn á Skólavörðustíg og ók upp á holtið. Á horninu við Hallgrímskirkju var ég í vafa hvort ég ætti að taka hægri eða vinstri beygju..og þvert gegn óskum konunnar þá ók ég til vinstri og ætlaði þá leiðina niður í norðurmýra þar sem ég á heima. Bergþórugatan var líka stopp.. en ekki vegna mikillar umferðar heldur hvernig menn leggja bílum með rassgatið út í götuna.. eins og fífl.
En versti vandinn var samt sá að menn voru á risastórum amerískum pallbílum að þröngvast áfram á þessari götu sem varla ber venjulega bíla því hún er ekki einstefnugata.
Svo koma þessi fífl á 3 tonna 2.2 metra breiðum amerískum bílum á langmesta umferðartíma ársins í borginni og halda að þeir séu á Toyota Yaris. Þeir hreinlega gátu ekki mætt öðrum bílum á Bergþórugötunni..
Þegar loksins úr greiddist og ég búinn að eyða hátt í klst í að komast 2 km þá blasti við afleiðingar þessarar trukkavæðingar landsmanna.. brotnir speglar á vinstri hlið þeirra bíla sem lagt var við Bergþórugötu.. hreinsaðir af vegna þess amerískum ofvöxnum fyrirbærum er troðið inn í götur þar sem þessir bílar komast ekki og MEGA EKKI LEGGJA HELDUR. Þessir bílar eru skráðir sem trukkar og mega því ekki leggja í venjuleg stæði sem enn vekur þá furðu mína afhverju þessir aular eru að fara á þessum bílum niður í bæ á þessum degi !
Það væri gaman (ekki bókstaflega meint sem gaman) að fá að vita það hversu margir bíleigendur í þingholtunum og skólavörðuholti hafa orðið fyrir speglatjóni í gærkveldi !
En þetta er lýsandi dæmi um hugsunarhátt íslendinga almennt.. Ég skal, Ég vil og ég mun gera.. án tillits til annara í kringum þá.
Gleðileg jól elskurnar mínar.