hmm og danska löggan er þrælvopnuð !!

Það er athyglisvert að rýna í þessa frétt því að umræðan hér heima er meiri og meiri vopnabúnaður fyrir lögreglumenn landsins vegna mikils ofbeldis gegn þeim.. Danska lögreglan er þrælvopnuð með skammbyssur á sér alltaf og hafa haglabyssur og vélbyssur í bílunum ásam úðabrúsum kylfum og ég veit ekki hvað... 

Greinilegt að meiri vopnabúnaður MINNKAR EKKI ofbeldi gagnvart lögreglunni.  


mbl.is Danska lögreglan beitt ofbeldi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hann Árni Matt er ömurlegur

Hann Árni Matt er ömurlegur sem ráðherra og persóna.. hann er að verða persónugerfingur sjálftektarflokksins í sinni verstu mynd. 

Hvernig í andskotanum dettur mannfýlunni þetta í hug ?  Fara í mál við ljósmæður sem eru að berjast fyrir RÉTTMÆTUM LAUNUM !!  Svona gerir enginn nema aumasta manntegund á þessu landi.. sjálftektarfólkið í Valhöll !!

Svei og svei 


mbl.is Ljósmæður: Uppsagnir löglegar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Klukkaður.. klikkaður ?

Addi klukkaði mig í kvöld og brást ég skjótt við. 

 

Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina. 

Kjötiðnaður

verslunarstörf

Fiskvinnsla

Sölumennska


Fjórar bíómyndir sem ég held upp á. 

Apocalypse now, uncut byggð á sögu joseph conrad heart of darkness

Saving private Ryan 

Dancing with wolfes

Highlander 1  fæ þessa lánaða frá Adda, þetta er mynd sem gleymist seint. 


Fjórir staðir sem ég hef búið á. 

Ljusdal Sverige

Reykjavík 

Bolungarvík

Skien  norge


Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar: 

náttúrulífsþættir hverskonar (ég horfi mest á discovery og þess háttar )

Næturvaktin 

Silfur Egils 

Fréttir 


Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum : 

Danmörk.. nokkrum sinnum

Thailand, einu sinni en er að fara aftur með familíuna

England/skotland ..mörgum sinnum, oftast vegna boltans

Island.. nær allt landið. 


Fjórar síður sem ég skoða daglega fyrir utan blogg : 

mbl.is 

forskning.no

Vg.no

dagbladet.no

Fernt sem ég held uppá matarkyns: 

Tom yum pla

Pad ped

Rib Eye a la Oskar Þ.

mest allt fiskikyns



Fjórar bækur sem ég hef lesið oft: 

"Percival Keene" las þetta listaverk sem er skrifað á miðri 18 öld í tætlur sem unglingur

"Heart of Darkness" eftir joseph Conrad 

"Hersveit hinna fordæmdu" eftir Sven Hazel, las hana í tætlur sem unglingur

"Heygðu mitt hjarta við undað hné"  haffði mikil áhrif á mig og mínar lífsskoðanir.


Fjórir bloggarar sem ég ætla að klukka 

Heidi Strand

trukkalessan

Gísli Hjálmars

Fjarki



Fjórir staðir sem ég vildi helst vera á núna : 

Thailand

Oslo 

Vietnam 

shanghai


Stake and play, Umsögn um staðinn.



Ég fór og horfði á landsleikinn milli íslands og noregs á Stake and play íþróttapöbbnum hans Geira í Goldfinger á Grensásvegi.

Við fyrstu sýn þá virkar hann töff og er talsvert lagt í stólana sýndist mér og margir flennistórir flatskjáir út um allt svo þú ert aldrei úr sjónfæri við leikinn.. nema kannski á dollunni. 

Ég var kominn 30 mín fyrir leik, settist í innri salinn við barinn og bað um bjór og matseðil. 
Þjónustustúlkan var vingjarnleg og vildi allt fyrir gestina gera en vantaði fágun og reynslu sem eflaust kemur fljótlega hjá henni. Aðrir þjónar voru svipuðu reki, um eða undir 20 ára og ekki með mikla reynslu.

Svo kom hamborgarinn, 1390 kall kostaði hann . borgarinn var kaldur, og brauðið farið að harðna aðeins svo mig grunar að ég hafi fengið mat sem einhver annar átti að fá en beilað á matnum og látið sig hverfa, því ég beið ekki nema í 5-10 mín eftir borgaranum og fékk hann kaldan sem sagt. Ágætlega bragðgóður og glóðarsteiktur en meðlætið var fyrir neðan allar hellur. Frönskurnar voru uppsópið úr steikarkörfunni.. 30 % af þeim voru stubbar eða hörð fita í köggli.. Ég nennti ekki að kvarta því stúlkan var svo elskuleg þegar hún spurði mig hvernig mér líkaði maturinn.. ég svaraði með brosi og vandlætingar handahreifingu, efast um að hún hafi skilið þá fáguðu handahreifingu. 

Bjórinn var kaldur og góður og runnu 6 niður yfir leiknum... 

Þá er komið að aðalatriðinu.. hvernig er að fylgjast með leik þarna ?

Hljómburðurinn er alveg hörmung og þótt hátt væri stillt, alltof hátt miðað við hljómburð þá var mjög erfitt að fylgjast með umræðum eða lýsingum í leiknum.. allt hrúgaðist saman í einn hávaðapakka. Þetta verður Geiri að laga, ég gef staðnum einn séns enn og ef hljómburðurinn verður eins.. og ef matuinn verður af sömu “gæðum” og í gær þá fer ég aldrei, ALDREI aftur á þennan stað.

Myndgæðin eru fyrsta flokks.. umgjörðin á staðnum er hinsvegar 3 flokks. Þeir sem hafa séð O´Leary´s í skandinavíu þekkja sportspöbba sem eru fyrsta flokks.. myndgæði, hljómgæði, matgæði og góð umgjörð. Ef Geiri hefði tekið þá staði sér til fyrirmyndar þá hafði hann skorað mikið hærra.. 
Staðurinn fær eftir mína fyrstu heimsókn.. 2 stjörnur af 5. 

Kebabhúsið við hliðina fær 4 stjörnur. Í ofangreindum atriðum.



athyglisvert..

færri dilkar en vænni.. segir þetta manni ekki að um ofbeit sé að ræða í venjulegu árferði ;)
mbl.is Vænir dilkar af Auðkúluheiði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sem betur fer.. spáði ég ekki rétt í dag.

ég spáði slæmum úrslitum í dag.. mest vegna oftrúar á norska liðinu og vantrúar á því íslenska.

Hér er einn af mínum spádómum fyrr í vikunni :

http://haukurn.blog.is/blog/haukurn/entry/632943/#comments 

Sem vetur fer þá hafði ég ekki rétt fyrir mér og því miður þá gengum við ekki á lagið og unnum þá norsku á heimavelli sem hefði verið frábær byrjun á þessu móti.

Í fyrri hálfleik fannst mér íslenska liðið vera með allt á hælunum en þó.. þeir héldu í við nojarana og stóðust álagið fyrstu 10 mínúturnar.. sme kom mér á óvart því nojarar eru þekktir fyrir kröftugar byrjanir á sínum leikjum.. bæði í fyrri og seinni hálfleik.  en vandi nojarar er að þeir eiga erfitt með að vinna sig inn í leiki sem hafa tapast niður eins og sást vel í seinni hálfleik í kvöld. 

Góður leikur okkar manna ... en ég SKIL EKKI AFHVERJU VEIGAR PÁLL FÆR SVONA FÁA SÉNSA, hann er þrátt fyrir allt besti leikmaður norsku deildarinnar..  með sinni fyrstu snertingu því sem næst þá hefði hann getað skotið okkur í 2-3.. en því miður þá fór gott skot hans í stöng.  Skammastu þín Óli fyrir að nota ekki þennan mann meira.

Glæsilegt og nú á bara að láta kné fylgja kviði og taka skota á miðvikudaginn.  


mbl.is Frábær úrslit í Osló
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

núna skammast ég mín fyrir landið mitt.

útlendingastofnun fær mig stundum til þess að skammast mín fyrir landið mitt.  Ég hefaldrei skilið afhverju ríkisstofnanir þurfa að vera svona kaldar og ómanneskjulegar.. og það þrátt fyrir yfirmann stofnunarinnar sé vélmenni og þurs, BB. 

Það er ekki farið að sjatna eftir Ramses þegar þetta skellur á.  Takið fingurnar úr rassgatinu á ykkur niðri í Skógarhlíð og skoðið aðstæður mannsins.. gersamlega óhæf stofnun. 

Ég á eftir að fara með pappíra konu minnar og er kominn 2 vikur fram yfir, kannski verður henni bara vísað úr landi ??  


mbl.is Kom 17 ára – sendur úr landi 23 ára
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Norskir landsliðsmenn láta reyna á kunnáttu sína í íslensku

Norskir landsliðsmenn spreyta sig á íslensku en virðast helst kunna orð sem bannað er að segja í fjölmiðlum..   

 

http://atvs.vg.no/player/?id=18335

 


Transnistria hélt þjóðhátiðardaginn hátíðlegan í gær

Transnistria hélt þjóðhátiðardaginn hátíðlegan í gær.. dagsatt en samt er landi hvergi skráð sem sjálfstætt land og finnst ekki á neinum kortum nema þá Transnistriskum og Rússneskum kortum.

En þetta er land á bökkum Dnépr milli Ukraínu og Moldóvíu. þarna búa um 540.000 manns.. þrælvopnaðir með um 20.000 tonn af skotfærum frá gamla sovét..

Það fer vart á milli mála ef maður skoðar hvað er að gerast í austur evrópu þessa dagana að Rússar eru í útþenslu og ætla sér stóra hluti í þessum heimshluta.. yugo Ossetia, Abkasía, austur ukraína.. og þessi landspilda í Vestur Ukraínu og austur moldóvíu. 

 

http://www.dagbladet.no/art/russland/historie/3291414/

 

http://en.wikipedia.org/wiki/Transnistria 


Til hamingju ég

ég er bara að óska sjálfum mér til hamingju með daginn.. já og Mikki má líka fá kveðju.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband