Bloggfærslur mánaðarins, mars 2009
hringavitleysulandið ísland
7.3.2009 | 12:15
Ég flyt inn íblöndunarefni fyrir matvæli og hef rekið mig á allskonar heimskulega tollamúra.. td á eins einföldum hlut og rasp.
Ef fiskframleiðandi vill flytja út fullunna vöru, beint í verslanir erlendis eins og fisk í raspi.. svona á svipuðum nótum og við þekkjum frá Findus.. þá þarf hann að kaupa rasp, batter og þess háttar.. Þessir hlutir bera vörugjald.. sem strax hækka vöruna um amk 16 kr á kg.. framleiðandanum í óhag í útflutningi..
En ef Findus flytur inn raspaðan fisk þá er enginn tollur á raspinum..
Svo er annað sem ég hef rekið mig á í viðræðum við kvótakarla með vinnslur.. þeir eru bara sáttir við það að fá þetta verð sem þeir fá fyrir óunnin fisk og hafa engan áhuga á frekari vinnslu því hún hefur í för með sér aukin kostnað og MANNAFL..
Við erum hráefnisþjóð á líkri línu með vestur afríku.. flytjum út óunnin matvæli til fullvinnslu erlendis..
Ég er ekkert voðalega stoltur yfir þessu...
á sama hátt má nefna garðyrkjubændur.. sem leggja upp laupana eins og aðrir í þessu árferði.. en þeir þurfa að búa við mikinn orkukostnað.. sem einkavinir Álgerðar og framsóknar í álverunum búa EKKI við.. við gætum sloppið við ótrúlegt magn á innfluttu fullunnu grænmeti í frystipokum.. Þetta gætum við auðveldlega framleitt að miklu leyti sjálf.. en á meðan stjórnmálamenn eru ekki með áhuga á þessu málefni þá gerist ekkert..
Áfram viðgengst innflutningur á fullunnum matvælum og við flytjum út óunnin matvæli...
Ísland er eitt vitlausasta land í heimi.
![]() |
Vilja fiskinn heim |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
einn þriðji íslendinga er siðlaus
5.3.2009 | 19:20
Það kemur fáum á óvart sem fylgst hafa með bankahruninu.. bullinu í þjóðfélaginu árin þar á undan að stór hluti þjóðarinnar er siðlaus, siðblindur og jafnvel hættulega sauðheimskur. Fólk sem ekki sér hvar spillingin grasserar... og kýs ósómann yfir sig aftur og aftur..
Umferðin endurspeglar ágætlega hugarfar íslendinga.. tilitslaus fífl upp til hópa.
UT VIL EK
![]() |
Sjálfstæðisflokkur með mest fylgi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |