hringavitleysulandið ísland

Ég flyt inn íblöndunarefni fyrir matvæli og hef rekið mig á allskonar heimskulega tollamúra.. td á eins einföldum hlut og rasp.

Ef fiskframleiðandi vill flytja út fullunna vöru, beint í verslanir erlendis eins og fisk í raspi.. svona á svipuðum nótum og við þekkjum frá Findus.. þá þarf hann að kaupa rasp, batter og þess háttar.. Þessir hlutir bera vörugjald.. sem strax hækka vöruna um amk 16 kr á kg.. framleiðandanum í óhag í útflutningi.. Woundering

En ef Findus flytur inn raspaðan fisk þá er enginn tollur á raspinum.. Tounge

Svo er annað sem ég hef rekið mig á í viðræðum við kvótakarla með vinnslur.. þeir eru bara sáttir við það að fá þetta verð sem þeir fá fyrir óunnin fisk og hafa engan áhuga á frekari vinnslu því hún hefur í för með sér aukin kostnað og MANNAFL.. Shocking

Við erum hráefnisþjóð á líkri línu með vestur afríku.. flytjum út óunnin matvæli til fullvinnslu erlendis.. 

Ég er ekkert voðalega stoltur yfir þessu...  Frown

á sama hátt má nefna garðyrkjubændur.. sem leggja upp laupana eins og aðrir í þessu árferði.. en þeir þurfa að búa við mikinn orkukostnað.. sem einkavinir Álgerðar og framsóknar í álverunum búa EKKI við.. við gætum sloppið við ótrúlegt magn á innfluttu fullunnu grænmeti í frystipokum.. Þetta gætum við auðveldlega framleitt að miklu leyti sjálf.. en á meðan stjórnmálamenn eru ekki með áhuga á þessu málefni þá gerist ekkert.. Angry

Áfram viðgengst innflutningur á fullunnum matvælum og við flytjum út óunnin matvæli...

Ísland er eitt vitlausasta land í heimi. Pinch

 


mbl.is Vilja fiskinn heim
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hlédís

..Ísland er eitt vitlausasta land í heimi. Pinch...

segir þú Óskar!

Og þó víðar væri leitað! má bæta við

Hlédís, 8.3.2009 kl. 20:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband