heimskautarefur ??
26.1.2009 | 16:59
ég hef oft rekið mig á að íslendingar kalla íslensku tófuna heimskautaref.. þetta er sami stofn eða skyldur norska stofninum og þar heitir hann fjellrev eða fjallarefur. Heimskautarefur eða "artic fox" er bara allt önnur tegund af ref eftir því sem ég best veit. Heimskautarefur skiptir td ekki um lit... er allt árið hvítur á meðan fjallarefurinn skiptir um lit vor og haust..
endilega fræðið mig ef þetta er rangt hjá mér !!
Skjóta rauðref til að vernda tófu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 17:03 | Facebook
Athugasemdir
Íslenska tófan er af tegundinni Vulpes lagopus sem kallast arctic fox á ensku.
Það eru síðan tvö megin litarafbrigði af arctic fox, hvítt og mórautt.
Bella (IP-tala skráð) 26.1.2009 kl. 17:18
Íslenski refurinn, Vulpes lagopus fulugiosus er undirtegund
heimskautarefsins, Vulpes lagopus.
Báðir skipta um lit eftir árstíðum, yrðlingarnir byrja brúnir....
Haraldur Davíðsson, 26.1.2009 kl. 17:19
já þetta voru gagnlegar upplýsingar , takk fyrir það, ég hef greinilega verið með einhverja meinloku gagnvart þessu.
Óskar Þorkelsson, 26.1.2009 kl. 18:19
... svo segir maður "að skjóta einhverjum ref fyrir rass" ekki... "að skjóta einhverjum heimskautaref fyrir rass"... heimildir; litli heillinn í boru Bratti...
Brattur, 26.1.2009 kl. 20:59
En þegar Hreiðar Már fer í jeppaferð á Suðurheimskautið með vinum sínum? Er það þá 'redamar fox' 'antarctica scumbag' eða bara tómt slúður og lygi?
Eygló, 26.1.2009 kl. 23:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.