smá athugasemd við fréttina
7.8.2008 | 20:31
Í fréttinni er sagt að Tyrannosaurus Rex sé stærsta rándýr sem vitað sé að hafi lifað á þurru landi.. þessi fullyrðing stenst ekki nánari skoðun því það er umdeilt hvort Trex hafi verið rándýr í þeim skilningi að hann dræpi sér til matar heldur er hann talinn hafa verið hrææta eða tækifærissinni.. drap ef hann sá sér færi á því en lifði annars á sjálfdauðum dýrum eða bráð annarra dýra.
Annað sem gæti kollvarpað fullyrðingunni í fréttinni er Spinosaurus Það er eðlan sem kom í jurassic park mynd númer eitthvað og drap Trex.. en hér fyrir neðan er grein um hana af wikipedia.. hún var mun stærri en Trex og var pottþétt rándýr.
http://en.wikipedia.org/wiki/Spinosaurus
um TRex http://www.unmuseum.org/tyran.htm
alltaf gaman af risaeðlum.. í fortíð og nútíð.. bið að heilsa Guðna Ágústsyni í þeim orðum töluðum
Forfaðir grameðlunnar fundinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Þú ert ótrúlega naskur á náttúrufræðina Óskar. Flottur:)
Svanur Gísli Þorkelsson, 7.8.2008 kl. 22:01
Já og naskur á náttúrufræðina í nútíðinni
Kristján Kristjánsson, 7.8.2008 kl. 22:06
Takk fyrir innlitið :)
náttúrufræði hafa verið hobbý hjá mér síðan ég var smápatti á Grenimelnum í skræðunum hans afa.
Óskar Þorkelsson, 7.8.2008 kl. 22:59
svo bara til að auka á fróðleikinn , þá var T-rex ekki einusinni næst stærst ... heldur fjórða stærsta
fín mynd hérna http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/c/c5/Largesttheropods.svgNátturunörd (IP-tala skráð) 8.8.2008 kl. 10:05
"alltaf gaman af risaeðlum.. í fortíð og nútíð.. bið að heilsa Guðna Ágústsyni í þeim orðum töluðum "
Var að læra á broskallanna.
Sigurður Sigurðsson, 10.8.2008 kl. 18:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.