Umferð dauðans kl 7.45
11.9.2007 | 08:49
Ég var 30 mínútum of seint á ferðinni en vanalega í morgunn.. og lenti í umferð dauðans ! Vanalega er ekki mikil umferð vestan úr bæ fyrir kl 8 að morgnana en ég fór út kl7.45 og ók austur Miklubraut. Allt gekk snurðulaust þar til komið var að gatnamótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar. Stanslaus umferð ofan úr Grafarvogi/Mosó/Grafarholti og Árbæ og að sunnan úr Haf og kóp. Þessir sauðir að sunnan óku hiklaust yfir á rauðu ljósi (beygja inn á miklubraut, leið vestur) með þeim afleiðingum að umferð að norðan og vestan stoppaði vegna bíla sem voru fastir á miðjum gatnamótunum.. svo kom grænt að austan og vestan og allt sat fast..
Þvílíkir snillingar og afhverju í andskotanum er ekki lögregla á þessum gatnamótum til þess að halda utanum umferðarþungan ? Sekta menn til hægri og vinstri fyrir að festast inni á gatnamótunum..
Hvenær koma mislægu gatnamótin hjá fuglamorðingjanum ?
Æi ég held ég vakni fyrr í fyrramálið..
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.