hnakkarnir á suðurnesjum

Hægið á ykkur helv hálfvitar !  Angry
mbl.is Fjöldi dauðra kríuunga á Stafnesvegi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

frábært framtak Samtaka 78

Ég fór á Gay pride í dag í rjómablíðu. Þetta var hin ágætasta skemmtun og toppaði Páll Óskar sýninguna með yfirdrifnu diskóteki á hjólum með þvílíkum trukk, það var alveg á mörkunum að þessi trukkur næði beygjunni úr Bankastræti inn á Lækjargötu.. en það hafðist. 

Þetta er orðin fastur liður í tilverunni og fín upphitun fyrir Menningarnótt sem er á næstu helgi.

Til hamingju hommar og lesbíur með daginn, glæsilegt framtak hjá ykkur þið gerir lífið litríkara.



mbl.is Gengið í nafni gleðinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glæsileg byrjun.

Fyrsti leikur tímabilsins hjá Liverpool er að baki og var það erfiður útileikur gegn Aston Villa. Sigur vannst eftir sjálfsmark, vítaspyrnu og frábæra aukaspyrnu SG.
Nýju mennirnir stóðu sig vel og var innkoma Babel sérlega glæsileg og var hann óheppinn að smella ekki boltanum út við stöng eftir einungis nokkrar sekúntur inni á vellinum. Torres var sterkur og kom sér í nokkur hálffæri og var varnarmönnum erfiður, sé bara gott eitt við þessi kaup. Voronin var frekar anonym fyrir minn smekk en hann fékk heldur ekki langan tíma.. kannski 10 mín. Góð byrjun á tímabilinu og nú er bara að byggja á þessum sigri..

kv Skari



mbl.is Gerrard tryggði Liverpool sigur með glæsimarki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Pew..

KR getur semsagt náð Fram í næstu umferð Wizard
mbl.is Skagamenn, Blikar og Fylkismenn sigruðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað gerir þessi stjórn KR núna ?

Ég var mikið að móti brottrekstri Teits frá KR.. eins og ég var á móti brottrekstri Willums og Magga.. hvað hafa þessir brottrekstrar gagnast félaginu ?  Jónas Kristinsson kemur í sjónvarpið og tuðar um METNAÐ.. hvar er metnaðurinn hjá stjórn KR ?  Ég held að þessir menn ættu að sjá sóma sinn í því að reka sjálfan sig allir sem einn.. 
Varðandi leikinn þá var hann hvorki fugl né fiskur og valsarar nýttu færin sín og dómarinn ætti að hætta að dæma.. já og línuverðirnir líka.. þvílíkir erki aular.  Ég er ekki að kenna þeim um tapið heldur voru þeir skelfilega lélegir líkt og flestir þeir dómarar sem ég hef séð í sumar.  

Stjórn KR burt !

mbl.is Valur sigraði KR 3:0 í Vesturbænum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta sé ég ekki fyrir mér hér á landi.

Svona staða mundi aldrei koma upp á íslandi að ráðherra reki forstjóra fyrirtækis sem ríkið á eignarhlut í.  Íslensk stjórnvöld eru hreinlega of veik og vinasinnuð til þess að svona lagað gæti nokkurntíma gerst hér á landi !

Plús til norskra stjórnvalda.

mbl.is Uppnám innan Norsk Hydro
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég fagna því ef satt er ..

Að mínu mati er Hamilton sá eini sem á skilið að aka um á rauðum fákum Ferrari eftir að Schumy dró sig í hlé.  Ef hann fer til Ferrari mun áhugi minn á F1 glæðast að nýju en hann  er í algeru lágmarki hjá mér þetta tímabilið.
mbl.is Hamilton til Ferrari?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til Hamingju

Til hamingju leikfangadeild lögreglunnar með það að vera loksins komin á almennileg MC.. næsta skref er auðvitað að komast á BMW 1200 RS en Yamaha dugar vel.  HD er því miður orðinn svo löngu úreltur að það er ekki fyndið.. þungt, gamaldags, og hávaðasamt. En samt töff...
mbl.is Fjögur sérútbúin lögreglubifhjól tekin í gagnið - bylting fyrir umferðardeildina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

stjórn KR er samansafn af loserum

Þessi stjórn virðist halda það að reka þjálfarann í hvert sinn sem illa gengur muni hjálpa til í stöðunni.. hef ekki lengur tölu á þeim þjálfurum sem hafa verið reknir af þessum mönnum undanfarinn ár.. Willum td er gott dæmi.. hvað er hann að gera í dag með Valsmenn ??

Ég hef sagt það fyrr að úr því sem komið er þá er best að halda kúrsinn... því við þurfum jú bara að ná Fram að stigum til aðhalda okkur í deildinni (það getur hvaða lið sem er gert) og þá hefði unglingastarf Teits farið að blómstra og framtíðin hefði verið björt.

Þessi stjórn KR með Jónas, Rúnar kristinsonar bróðir, í fararbroddi hefur gert þjálfarastöðu KR að grínstöðu og enginn þjálfari með sjálfsvirðingu mun fást til þess að skrifa undir samninga við KR á meðan þessi stjórn er við velli hjá okkur.

Þessi brottrekstur mun ekki breyta nokkrum sköpuðum hlut í sumar,  liðið mun halda sér uppi og það jafnvel ef að ég mundi taka liðið að mér til loka keppnistímabilsins.

Ég er ósáttur við stjórn KR í dag.. sem oft áður.

mbl.is Teitur rekinn - Logi stjórnar KR út leiktíðina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ég vík ekki fyrir fólksbifreiðum

Ég vík ekki fyrir fólksbifreiðum á þessum örmjóu lélegu vegum fyrir utan veg númer 1 . ef fólksbifreiðin vill ekki víkja þá erum við bara stopp þar sem við erum á veginum.. rúta og flutningabílar hreinlega geta ekki vikið til að hleypa smátíkunum framhjá því vegirnir eru svo lélegir !  Þetta verða þeir að skilja sem aka um á smátík og mæta þessum stóru bílum.. smábíllinn 
verður að víkja sama hvernig aðstæður eru og hver á "réttinn" .
mbl.is Vegkantur gaf sig undan rútu við Dyrhólaey
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband