4000 er nær sannleikanum en 1000
3.1.2009 | 16:18
en svona "niður"talning er svosem ekkert óalgeng í fjölmiðlum eða hjá lögreglunni.
Ég var að koma heim af austurvelli og ég gat ekki betur séð en að fjöldinn hafi verið töluvert yfir 3000 manns.
Falsanir og lygar í fjölmiðlum landins eru að verða óþolandi.. sbr Ara Edwald sem talaði um milljónatjón á gamlársdag.. raunverulegt eignatjón var lítið sem ekkert.. Sigmundur Ernir laug framan í alþjóð og sagði að myndavélar og annar búnaður hafi skemmst.. LYGI.
Eina tjónið sem varð hjá stöð 2 var tap á kostun þáttarins sem var Rio tinto alcan.. þeir að sjálfsögðu borguðu ekki kostun á hálfum þætti..
Mótmælt á Austurvelli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Ég hef uppgötvað Pravda á netinu... og komist að því að það er skemmtilegt blað og ekki lygnara en mbl.is
- en fyrir þá sem ekki muna, þá var pravda þekkt á tímum kommúnista fyrir að birta svo óforskammaðar lygar að enginn gat annað en hlegið, allavega hér á vesturlöndum, hættulegra að hlægja í nálægð járnhnefans.
http://english.pravda.ru
Gullvagninn (IP-tala skráð) 3.1.2009 kl. 16:24
Hvar voru hin 98,9% þjóðarinar? Hahahaha
Sigurbrandur Jakobsson, 3.1.2009 kl. 16:32
Ha - nær 4000 - svo yfir 3000 eee lögreglan segir 1500-2000 - að sjálfsögðu fullyrðið þið að lögregla sé að ljúga - því að margur heldur mig sig - EN SVO ER STÍRA MÁLIÐ
Hvar var barnið sem átti að vera fórnarlamb níðinganna sem ætluðu að nota hana sem ræðumann?
Hún var ekki nefnd sem ræðumaður - bara einhver kvenmaður og Einar Már stórkommi.
Ólafur I Hrólfsson
Ólafur I Hrólfsson (IP-tala skráð) 3.1.2009 kl. 16:33
sammála óskar..
það voru greinilega miklu fleirri.
Brynjar Jóhannsson, 3.1.2009 kl. 16:57
"Hvar voru hin 98,9% þjóðarinar? Hahahaha"
Tala bara fyrir sjálfan mig en ég var norður á Akureyri. Hahahaha
Víðir Benediktsson, 3.1.2009 kl. 17:00
Talinn á myndu leiðir í ljós að um 1700 manns hafi verið á fundinumþ
Rauða Ljónið, 3.1.2009 kl. 17:03
Sælir.
Það er auðvitað alltaf erfitt að giska á fjölda. Ætli á bilinu 2000-3000 sé ekki rétt? Skv vinnufélaga mínum sem fór, taldi hann fjöldan ekki meiri en 1500-2000, en það er hans álit. Aðrir segja 3000 + Hvað með það, hægt að þræta endalaust um fjölda.
Óumflýjanleg staðreynd er sú að mótmælin í dag voru ágæt, heiðarleg og vel skipulögð eftir frásögnum.
Hinsvegar var illa mætt, miðað við ástand ættu að vera á bilinu 15-20.000 manns, ekki sammála Óskar? Ráðamenn myndi veita því athygli ef tugir þúsunda myndu mæta.
Önnur staðreynd er sú að ástæða þess að fleiri mótmæla ekki er sú slæma mynd sem komin er á mótmælin. Fámennur hópur fólks hefur saurgað mótmæli með ofbeldi og skemmdarverkum. Það er að koma í ljós núna, enda vill enginn heiðvirður maður vera bendlaður við slíkt fólk sem virðir ekki lög né reglur.
Annars hrósa ég mótmælum dagsins, komst því miður ekki vegna veikinda fjölskyldumeðlims en vildi gjarnan sjá mikið fleiri. Ef mótmælendur þeir sem hafa framið ódæðisverk halda sig á mottuni ganga fleiri borgarar til liðs og flykkjast á Austurvöll. Í friðsamleg mótmæli.
Baldur (IP-tala skráð) 3.1.2009 kl. 17:06
Að sjálfsögðu var fjöldi á fundinum vel yfir 3000 manns! Löregla deilir aldrei með minni tölu en 2 í svona tilvikum - Tala ég af 50 ára reynslu. Hvort Hermálaráðherra og hans lið fylgist með gjörðum lögreglu skal ósagt látið. FLOKKURINN, meðal annars UNDIR STJÓRN pabbi ráðherravesalingsins, kollaði vel á svona málum hér fyrr meir. Þá voru mótmælendur skráðir niður (settir á svarta lista) misstu vinnu, eða voru ekki ráðnir í vinnu, símhleraðir - og VARNAR-liði afhent eintök af svörtu listunum. Þetta er ein af ástæðunum fyrir heigulshætti margra enn og furðutali þeirra um mótmælendur. Það VAR ástæða til að óttast tiltæki forkólfa Sjálfræðisflokksins, m.a., DO!! Eruð þið enn svona hrædd? Geta þeir skemmt meir, ef undirlægjurnar standa upp?
Hlédís, 3.1.2009 kl. 18:13
takk fyrir innlitið Hlé-Guðm :)
Óskar Þorkelsson, 3.1.2009 kl. 19:18
Varst það þú sem stóðst uppá pallinum og varst að telja? Hum, ótrúlegar þessar fréttir um fjöldann, þetta minnir einna helst á kosningar þegar allir stjórnmálaflokkar vinna sama hvort þeir í raun tapa eða vinna.
Óttarr Makuch, 3.1.2009 kl. 21:06
Ég las langlokuna þína Óttarr um sama efni og fannst ekki mikið til koma..
Óskar Þorkelsson, 3.1.2009 kl. 21:11
á þínu bloggi.. vantaði á einhvern dularfullan hátt inn í setninguna..
Óskar Þorkelsson, 3.1.2009 kl. 21:11
Hvað setning skildi það nú vera?
Óttarr Makuch, 3.1.2009 kl. 22:56
Ég las langlokuna þína Óttarr á þínu bloggi um sama efni og fannst ekki mikið til koma..
skilja nú ?
Óskar Þorkelsson, 3.1.2009 kl. 23:38
Ég skildi það sem svo, en hungsalega er það vegna þess að við erum ekki á sama máli
Óttarr Makuch, 4.1.2009 kl. 00:27
maður lítur Sigmund öðrum augum eftir þessa uppákomu.
ps. það stendur vízt "white pride" á vinstri upphandlegg slagmálahundsins úr seðlabankanum klemenssonar
Þorsteinn Ingimarsson (IP-tala skráð) 4.1.2009 kl. 02:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.