Varðhundur hrokans
27.3.2008 | 19:15
Ég var að horfa á Sigurð Kára verja Árna hrokagikk með kjafti og klóm og endalausum rakaleysum á stöð 2 rétt í þessu. Sjálftektarflokkurinn er orðin grímulaus.. hrokinn og valdagræðgin ráða ríkjum þar á bæ. Virðingaleysi gagnvart umboðsmanni alþingis er alger innan sjálftektarflokksins.
Ég vil slíta stjórnarsamstarfinu því sjálftektarflokkurinn mun draga Samfylkinguna niður í svaðið með sér..
Athugasemdir
Heil og sæll; nafni og aðrir skrifarar !
Hvah,........ ertu enn, liggjandi í Samfylkingar grútardamminum, nafni minn ?
Með beztu kveðjum, sem oftar / Óskar Helgi Helgason
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 28.3.2008 kl. 01:34
já nafni, ég kaus samfylkinguna í síðustu kosningum en atkvæði mitt mun líklega ekki falla þangað aftur ef flokkurinn ætlar að þýðast mikið meira við sjálftektarliðið.. En það er skortur á öðru skárra enn sem komið er.
Erlingur, ég er algerlega sammála þér.
Já Gunnar, Sigurður Kári er hlýðinn flokkshvolpur og vafasöm hjálp í honum.
Óskar Þorkelsson, 28.3.2008 kl. 13:32
sammála ykkur öllum
halkatla, 29.3.2008 kl. 15:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.