ofdrykkja
4.5.2007 | 17:02
Núna hefur það enn einu sinni sannast að öl er böl . Dóttir David Hasselhoff hefur myndað karl föður sinn útúrdrukkinn veltandi um á gólfinu hálfósjálfbjarga og slafrandi í sig hamborgara með erfiðismunum.. hver tilgangur dótturinnar er, er mér hulin ráðgáta en mikil mega þau sárindi hafa verið sem gerðu það að verkum að hún ákvað að birta myndskeiðið..
Það er alveg dagljóst að Hasselhoff á við mikinn vanda að stríða sálrænan og líklega líkamlegan. Ég hef alist upp við ofdrykkju á mínu heimili og hef horft upp á svipaðar senur og margar verri en þessar sem er sýnd í myndbandinu. börn alast upp við þessar aðstæður á íslandi og fer ölið ekki í greinarmun á ríkum og fátækum eins og sannast hér.
Byrði betri
ber-at maður brautu að
en sé mannvit mikið.
Vegnest verra
vegur-a hann velli að
en sé ofdrykkja öls.
höfundur er ekki bindindismaður !

Dóttir Davids Hasselhoffs myndar útúrdrukkinn föður sinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.