Svíþjóðarblogg

Ég hef verið á ferð og flugi í dag að skoða verksmiðjur og verslanir.. Skemtilegur og árangursríkur dagur. Kúnnarnir mínir ánægðir og vonandi skilar það sér í auknum viðskiptum á nýju ári.

Skane er brúnn á þessum árstíma en mikið skelfing er gott að koma hingað. Gott hótel (First Hotel christian iv ) fallegur bær Kristianstad þar sem við erum, ca 40.000 manns sem hér búa, falleg stór kirkja frá 17 öld trónir í miðbænum og mörg reisuleg hús frá gullaldarárum svía. Hótelið okkar er til dæmis gamall banki og mjög reisulegt.

Fjelkinge er smábær á stærð við Selfoss og er afskaplega fallegur en þar vorum við að skoða verksmiðju í dag.  Lágreist skánsk hús í líkingu við það sem maður sér í danmörku sumstaðar, stórir garðar og mikið af lauftrjám.

Ætlum að skoða Malmö í stað Köben á morgunn, við þekkjum öll köben en fáir þekkja Malmö svo við ætlum að bæta úr því í þessari ferð.

Hej hej


Heja Sverige

Ég er stunginn af til svíþjóðar í nokkra daga. engin skemmtiferð svo sem heldur viðskiptaferð (það eru heldur ekki margar ferðir til SE skemmtiferðir ).  Verð í norðaustur Skane í Fjelkinge.

Bið að heilsa í bili.


enn og aftur fáranlegur fréttaflutningur

Ég skil ekki þessa mæru á ísraelsmenn og hvernig fréttin er uppsett.. 5 manns létust og þeir voru auðvitað "herskáir" palestínumenn..  sko í allri fréttamennsku frá því í fyrri heimstýrjöld og sennilegast síðan farið var að flytja fréttir frá stríðsátökum hafa fréttirnar litast af hlutdrægni. eins og þessi frétt.. það passar nefnilega svo vel við málstað ísraels að allir sem eru myrtir af þeirra völdum séu herskáir óvinir.. hvort sem þeir eru 8 ára skólastelpa eða 73 ára karlmaður.  Loftárásir gera engan greinarmun á háum eða lágum..

Svo var ánægjulegt að sjá að skólanum var lokað rétt á meðan ísraelsmenn voru að taka til og myrða herská fólkið í þorpinu góða.

Skv fréttinni þá voru ísraelsmenn að rífa niður innviði hryðjuverkaríkis, ég meina enginn er betur til þess fallinn því ekkert ríki fellur betur undir þann flokk en einmitt Ísrael. Líkur sækir líkan heim stendur einhverstaðar.

Ég trúi ekki einu orði í þessari frétt nema því að ísrael gerði árás.


mbl.is Umfangsmiklar hernaðaraðgerðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rafa er oft tuðari.

Það er með ólíkindum hvað Rafael getur tuðað, hann segist taka einungis einn leik fyrir í einu en er í næsta leik að segja að leikurinn eftir þann leik sé svo mikilvægur !!  Það ekki von að maður klóri sér í hausnum enda er "recordið" undanfarna 6 leiki alveg meiriháttar hjá Liverpool þar til Reading lét fleytuna steita á skeri.. Hann tekur SG útaf vegna þess að það er svo mikilvægur leikur framundan og að staðan hafi verið töpuð !! HALLÓ Senor Benites.. það voru heilar 20 mínútur til þess að jafna leikinn og ná stigi út úr þessum leik. en nei, Rafa ákveður að fara þá leið að tapa leiknum.

Mér er alveg sama þótt við hefðum átt að fá minnst  2 víti í þessum leik.. við áttum líka tvisvar sinnum skot í tréverkið. Dómarinn tapaði ekki leiknum fyrir okkur heldur gerðu leikmennirnir það og stjórinn með sinni uppstillingu.  Við höfum verið að spila 4-4-2 og unnið góða sigra undanfarið en í dag ákvað Rafa að spila 4-3-3 , Voronin og SG á köntunum með Harry Kewell á bekknum !!  Ég skil ekki alveg þá uppstillingu og þar að auki að hafa Peter Crouch inná.. ég stend við þá fullyrðingu mína að EKKERT lið mun vinna enska titilinn með þennan trúð innanborðs.

Næsti leikur er gegn Marseilles í Frakklandi á miðvikudaginn.  vonandi gengur betur næst.


mbl.is Benítez óánægður með dómarann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kiljan, lélegur umræðuþáttur

Ég hef gert nokkrar tilraunir til að horfa á þennan þátt hans silfur-Egils og verð að segja það að leiðinlegri þátt er vart hægt að finna í sjónvarpi að innlit útlit ólöstuðu. Sömu viðmælendurnir í hverjum einasta þætti.. faglegar umfjallanir um bækur finnast ekki í þættinum.. Egill er fínn í pólískum anti feminista umræðuþáttum en hann ætti að láta þessa óværu eiga sig.

Ég hef séð svipaða þætti í svíþjóð og noregi og þar er tekið faglega á hlutunum og þú veist um hvaða bók er verið að tala um og ekki ætlast til að áhorfendur séu vel lesnir bókaormar.

Ömurlegur þáttur.


ekkert nýtt hér...

enda er Ísrael mesta samansafn morðingja og hryðjuverkamanna í heiminum og allra mesta ógnunin við heimsfriðinn sem fyrirfinnst.  Þetta land er viðbjóður !  minna meira og meira á Das Reich , Dolla H ,  Heinrik og hina kumpánana.

Slítum stjórnmálasambandi við þessa helv villimenn.


mbl.is Ísraelsher tilbúinn til árásar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

hvar eru heimildirnar ?

Þessi frétt hljómar eins og kjaftasaga í kerlingaklúbbi úti á landi... engar heimildir og ekki einu sinni ein einasta leyniþjónustustofnun nefnd á nafn.. ruslfréttamennska mbl.is !
mbl.is Ekki líklegt að Íranar vilji koma sér upp kjarnorkuvopnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta kemur mér ekkert á óvart enda..

.. þegar ég flutti til noregs fyrir 11-12 árum þá hækkaði ég í launum í kjötiðnaði um nær 100 % við flutningin, þessi munur er um 25 % í dag. En það sem kom á óvart við þennan samanburð var að ég vann við sömu störf í verslunum ytra eins og hér en launin í noregi voru mun hærri.. og álagningin lægri !!  Ég hef ekki enn áttað mig á þvi afhverju þessi munur er.. hærri laun ásamt lægri álagningu !!  Kaupás og Baugur eru eflaust að taka til sín stærri bita af kökunni en norðmönnum finnst mannsæmandi.

Ég geri ráð fyrir ástandið sé svipað í hinum atvinnugreinunum !


mbl.is Svipuð laun og á Norðurlöndum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

komment á vitlausa frétt í visir.is

Ég vil aðeins kommentera á þessa arfavitlausu frétt af visir.is. í fyrsta lagi þá er thailand ekki skrifað tæland á íslensku heldur taíland skv orðabók háskólans, lærið þetta blaðamanna sauðir !!  í annan stað þá er bleikt ekki einhver tískubylgja heldur er svo að dagarnir hafa sína liti. sunnudagur hefur rautt, mánudagur gult, þriðjudagir bleikt, miðvikudagur grænt, fimmtudagur appelsínugult, föstudagur ljósblátt, laugardagur fjólublátt. 

Ástæða þess að konungur Taílands klæddist bleiku er sú að systir hans er fædd á þriðjudegi og hennar litur er bleikur og hún er veik. Þess vegna klæddist konungurinn bleikri skyrtu henni til stuðnings. Venjulega ef taílendingar vilja hylla kónginn sinn þá klæðast þeir gulu því konungurinn er fæddur á mánudegi.  En í virðingarskyni við systur konungs þá klæðast þeir bleiku á meðan hún er á sjúkrahúsinu og þetta hefur akkurat ekkert með tísku að gera blaðamannafífl.

Hér er fréttin copy paste af www.visir.is

Bleik tískubylgja í Tælandi

mynd
Hans hátign í bleika gallanum.

Fataframleiðendur í Tælandi hafa ekki undan að framleiða bleikar skyrtur og bleika jakka. Fatakeðjan Phufa hefur selt 40 þúsund bleikar skyrtur frá því í byrjun nóvember.

Fólk stendur í biðröðum frá því eldsnemma á morgnana til þess að tryggja sér bleikt úr nýjustu sendingunni.

Höfundur þessarar bleiku tískubylgju er Bhumibol Adulyadej, konungur landsins. Hann var nýlega lagður inn á sjúkrahús í nokkra daga til eftirlits.

Og þegar hann útskrifaðist af sjúkrahúsinu var hann í skínandi bleikri skyrtu og bleikum jakka.

Konungurinn gegnir engu formlegu hlutverki við stjórn landsins, en hann er nánast dýrlaður af þegnum sínum sem líta á hann sem siðameistara og samvisku þjóðarinnar.

Ástæðan fyrir því að fólk bíður í röðum eftir bleikum fötum er sú að það trúir því að það muni færa konunginum gæfu ef það klæðir sig í bleikt.

Og Tælendingar gera allt fyrir konung sinn.


Kalli tomm

Ég tók við keflinu í gærkvöldi eða sl nótt eiginlega, af Kvaran.

Vegna anna í kvöld við öldrykkju og vambafyllingu verð ég að hefja leikinn mun fyrr eða kl 1600 í dag.  Þar sem reglurnar eru frekar óljósar fyrir mér mun ég reyna að gera þetta með svipuðu sniði og ég hef orðið vitni að undanfarið.

Spurningin kemur kl 1600 stundvíslega.

jæja hér er spurningin .   Spurt er um áhald/verkfæri

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband