Þetta hef ég sagt í tæp 2 ár..
16.2.2008 | 17:24
.. að Rafael Benitez er EKKI maðurinn til þess að gera eitt eða neitt hjá liverpool.. við erum eins og stendur 19 stigum á eftir Arsenal í deildinni, dottnir út úr deildarbikar og FA bikar.. erum að fara að detta út gegn Inter í næstu viku og frábið ég mér aumkunnarvert væl liverpool manna sem segja að við eigum séns í inter.. við vorum að tapa fyrir Barnsley ef þið skiljið hvað ég meina og orðspor Rafa sem tæknisnillings og skipulagssnillings í bikarkeppnum er löngu dautt en það kom all illileg skítalykt af því orðspori í dag.
Burtu með þennan sauð þar sem hann skilur ekki sjálfur að hann er búinn að vera í Liverpool fc og er orðinn líkt og forveri hans dragbítur á félagið. Ég vildi reka Rafa í fyrrasumar, ég vildi reka hann 1 jan.. ég vil líka reka hann 16 febrúar 2008.
![]() |
Liverpool úr leik í bikarnum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
bloggletin að fara með mann..
14.2.2008 | 21:48
Ég hef verið svakalega latur við að blogga undanfarið þótt margt hafi brunnið á mér.. td borgarstjórn en ég hef bloggað svo mikið á annara manna síðum um það ætti að vera ljóst hvað mér finnst um það mál allt.. en í stuttu máli þá er það svona : Villi er vitlaus, Óli er falskur.. borgin er ekki í góðum höndum.. lygarar og lymskumerðir stjórna hér á bæ..
Umferðin hefur verið mér hugleikin, aðalega vegna þess hversu lélegir íslendingar eru almennt í umferð.. þeir taka ekki þátt í umferðinni heldur keyra þeir út í umferðina sjónlausir, heyrnalausir , fattlausir, tillitslausir, hægfara og virðast almennt skyni skroppnir.
Einn hringdi inn um daginn og kvartaði yfir íslendingum í umferðinni en opinberaði heimsku sína um leið.. hann sagði að hvergi á byggðu bóli þekktist það að menn tækju framúr hægra megin í umferðinni.. og bölvaði slíkum ökumönnum sem tækju framúr hans sjálfrennireið hægra megin ! Þessi fauskur fattar það ekki að hann var sjálfur að þvælast á vinstri akrein, gersamlega sjónlaus og skynlaus á umferðina sem fór greinilega HRAÐAR en snillingurinn sem hékk á vinstri akrein og ók of hægt.. þvílíkur sauður. Pottþétt dæmi um sauð í umferðinni.
Önnur mál hafa verið nærri mér og þá einna helst að ég hef verið að rokka feitt í pílukasti undanfarið.. en pílukast er mitt áhugamál í stað þess að þvælast um golfvelli.
Annars er bara allt í þessu fína þannig lagað.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
ánægður með rússana
11.2.2008 | 23:14
![]() |
Rússneskar flugvélar flugu yfir bandarísk flugmóðurskip |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Ég vil koma á framfæri þessum pistli um mannréttindabrot á íslandi.
3.2.2008 | 10:38
Ég sá þennan pistil hjá Boga bloggvini og var það sterk lesning og vil ég því koma honum á framfæri við sem flesta.
http://5poweris.blog.is/blog/5poweris/entry/432130/#comment1031196
ef einhver vildi vera svo vænn að kenna mér að setja link inn á þetta blogg, hef prufað html kódana sem ég kann og þeir virðast ekki virka,
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Norðurljósaferð í kvöld
2.2.2008 | 16:39
Ég fer með túrista að skoða norðurljósin í kvöld, veðurspáin er hagstæð og því vona ég að við fáum mikla sýningu í kvöld. Ég reikna með því að fara austur fyrir fjall eða upp á þingvöll.. ákveð mig sennilega ekki fyrr en í Ártúnsbrekkunni á hvorn staðinn ég fer.
Það verður skítkalt eða um 20 stiga frost í kvöld svo ég ætla að hafa með kaffi á brúsa og húfu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Jæja Rafa
30.1.2008 | 21:50
![]() |
Ronaldo skaut United í toppsætið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Enski boltinn | Breytt s.d. kl. 22:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
ja sveiattann
30.1.2008 | 21:24
![]() |
Ísraelum mistókst alvarlega |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Spaugstofan 26 jan 08
27.1.2008 | 10:08
Þessi þáttur var með ígildi 10 áramótaskaupa.. ég hef sjaldan hlegið eins mikið yfir spaugstofunni og í gærkveldi.
Þeir voru líka svo andskoti hittnir á málefni vikunnar.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
það er ömurlegt að sjá að Egyptar fylgja ísrael að málum
26.1.2008 | 20:52
![]() |
Egyptar vilja fund með Hamas |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
sjallar munu sprengja þennan meirihluta sjálfir.
26.1.2008 | 19:40
Ég er sammála Gísla Marteini og Hönnu Birnu með þetta og er greinilegt að þeim sé ekki alls varnað. En þá skulu þau hysja upp um sig brækurnar og henda Óla Falska út í hafsauga þar sem hann á heima. Gísli og Hanna Birna eru ábyrg fyrir 600-800 milljóna glapræði á laugaveginum sem mun verða til þess að fasteignaverð í miðbænum mun lækka og viðskiptin minnka því þarna má enginn framþróun eiga sér stað !
Ég gef Gísla og Hönnu Birnu nokkrar vikur áður en þau gefast upp á Villa vitlausa og Óla Falska..
![]() |
Vilja íbúðabyggð í Vatnsmýri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)