Ubon Rachathani og landamærin við Laos

Ubon ratchathani

Við komum hér eftir tiltölulega stutt ferðalag frá Surin, eða um 2 og hálfs tíma akstur. Ubon er landamærafylki við Laos , feykifallegt hér og fylkið hefur upp á margt að bjóða sem mér datt ekki í hug áður en ég fór hingað.. fyrst og fremstkomum við hingað til að heimsækja ættingja eiginkonunnar.

Mekong áin er stórkostlega falleg á að líta og tók ég fjöldan allan af myndum.. sem því miður virðast verða glataðar því memory cardið er ónýtt.. segir myndavélin. tæplega 900 myndir horfnar úr ferðinni..

Sundferðir bátsferðir, sólarlagsmyndir af mekong og fjölskyldumyndir... fljótandi musteri og fleira og fleira.. allt glatað nema eitthvað tæknitröllið geti reddað kortinu..

Hér er ég búinn að skoða hellaristur þar sem ég gekk í 2 klst í tæplega 40 stiga hita til að ná þessum myndum... svo svekkelsið er svakalega mikið.

bátsferðin um Mekong var ógleymanleg.. og sundsprettirnir einnig þar sem við syntum rétt við landamærin til Laos þar sem Moon river mætir Mekong.. svo stutt til Laos að maður gat kallast á við fólkið þar.. en gersamlega harðbannað að koma við þar.. hefði tekið 5 mínútur að synda þangað

Frumskógarferðin í gær.. þar sem við fórum að skoða frumskóg á landamærunum... sáum svakalega sérstakar klettamyndanir sem eru eins og sveppir.. þar sem 120 milljón ára berg hvíldi ofan á 160-180 milljón ára bergi.. ekki ósvipað og í Arisona nema hér eru klettarnir svartir og hvítleitir í stað rauðir í Arisona.

En svona er lífið.. eintómt yin og yang..

fjölskyla konunnar er afskaplega vinaleg og vilja allt fyrir mann gera.. það var farið með mann þvers og kruss um héraðið til að sýna Farang ( hvítir menn eru farang í thailandi) allt það sem markvert er að skoða..

Klaustur og musteri.. skógar og klettamyndanir.. og allt endaði með BBQ á ströndinni thai style.. æðislegt. Fiskur grillaður heill.. smokkfiskur grillaður, papaya pok pok salat.. sundsprettur í uppistöðulóninu.. sólarlag til hægri.. þrumuveður til vinstri þar sem Laos er.. koniak í sóda og ís... opin eldur ... og þegar allt var búið var ekki hægt að sjá að nokkur hafi verið þarna því þeir tóku allt með sér.. huldu eldstæðið með sandi og ruslið í bílinn.. ég meina á pallinn því þetta er pallbílasamfélag dauðans.. enginn maður með mönnum nema að eiga pallbíl.. tveir lögreglumenn komu með í þetta strandpartý okkar og drukku báðir stíft.. og óku svo heim á eftir... allt ferlega afslappað og fínt.. ekkert stress finnst.. matur út um allt og lífið gekk út á mat..

tek dæmi um matinn..

um morguninn (07-09) éta thailendingar mat eins og um kvöldverð sé að ræða.. hrísgrjón, núðlur, ferskt grænmeti og kjöt eða fisk.. síðan er farið í bílinn... og þar maula þeir og maula alla leiðina.. drukkið vatn með öllu.. bara ég drakk kók eða bjór nema um kvöldverð var að ræða.. og ég át aldrei í bílnum. síðan var komið á ákvörðunarstað og þá fá þeir sér snarl.. ís eða eitthvað, hnetur voru vinsælar.. síðan skoðað það sem átti að skoða.. í kringum kl 12 voru þeir orðnir svangir og þá var farið á veitingastað og étið margréttað.. minnst 3-4 réttir en oftast voru þeir fleiri.. það fór klst í þetta matargat.. síðan út að keyra ( allir að maula eitthvað í aftursætinu).. komið á áfangastað og þar var tekin upp poki með einhverju matarkyns og allir fengu sér smotterí (nema ég).. skoðað í 1-2 klst .. og þá voru allir svangir aftur og leitað dauðaleit að almennilegum veitingastað.. 5-6 réttir í þetta sinn.. hið minnsta.. þessi máltíð tók amk 2 klst með helling af bjór og viskí í sóda.. enda helgi.. allir ferlega hamingjusamir með strákinn enda át ég allt sem þeir átu..

Maurar í fiskisúpu ásamt mauralifrum... þetta gerði súpuna sæta og ég át með bestu lyst og þetta var reyndar skratti gott.

Mauralirfu salat.. þetta er ekki djók !! ég borðai nokkrar skeiðar af þessu "lostæti" ena þótt bragðið hafi verið gott þá sagði heilinn eitthvað allt annað og ég lét mig hafa það að borða bara nokkrar skeiðar.. en þeim fannst mikið til koma að ég skuli hafa étið þetta stuff..

stórar flugur, svona sirka eins og hálfur litliputti, held að þetta hafi verið einhverskonar engispretta með mjög sveran búk því þessi fluga skapar svakalegan hávaða með afturfótunum.. það er reyndar mynd af þeim rétti á síðunni til hægri.. þetta var bara helv gott á bragðið en þegar fálmararnir fóru að festast í tönnunum eða kannski voru það lappirnar sagði ég stopp.. en gott var það.

Með öðrum orðum þá át ég allt sem þeir átu, með sama kryddstyrk og þér nota og uppskar talsverða virðingu þeirra fyrir bragðið því Farang segja oftast nær bara nei ef þeim líkar ekki maturinn eða hafa ekki séð hann áður... konan stolt af stráknum og ég orðin hetja í þeirra augum.. kannski var það líka vegna þess að ég gekk í 40°c hita 3 km leið yfir kletta og klungur án þess að kvarta eða gefast upp... þeir sneru flestir við en ég og tveir thailendingar gengum áfram til enda og var það mjög eftir minnilega ferð í alla staði, hellaristur sem eru amk 2000 ára gamlar.. svo var líka klappað fyrir okkur þegar við komum á leiðarenda.. en letingjarnir höfðu ekið á áfangastað til þess að fagna hetjunum.. mikið ofboðslega var mér heitt á þeirri göngu.. hjartað hamaðist og ég léttist örugglega um 5 kg af svita.. held reyndar að ég hafi misst um 15 kg það sem af er ferðarinnar, bjúgurinn farinn úr fótunum og vömbinn minnkað töluvert.. enda er ég ekki í letiferð á sólarströnd :) en síðasta vikan verður í syndabælinu Pattaya svo kannski koma þessi kíló aftur þar.... hver veit.

p.s ég hef séð um 30 thailendinga á Isuzu pallbíl... þetta er ekki djók.. 2 frammí, 5 afturí.. 12 á pallinn og 8 á toppinn :D og 6 thailendinga á scooter motorhjóli.. 4 í sætið einn stíð og svo sá sjöttu var hundur sem lá á milli lappana á þeim sem stóð...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

jæja fyrst verð ég að segja að ég hef ekki öfundað manneskju jafn mikið og þig pabbi langar geðveikt að vera þarna með þér og klára að labba 3 km leið yfir kletta og klungu og fá klapp í endann =). Við söknum þin hér í kalda landi og byðjum að heilsa öllum í Thailandi ! =)

Egill (IP-tala skráð) 7.4.2009 kl. 13:26

2 Smámynd: kop

Ég vona að myndirnar séu ekki glataðar, væri gaman að sjá þetta sem þú ert að segja frá.

Ég hef nú heyrt að það sé hægt að lækna svona memorycard eða allavega ná því sem er á því. 

kop, 7.4.2009 kl. 18:01

3 Smámynd: Óskar Þorkelsson

Egill.. thu kemur bara med naest :)  buin ad vera frabaer ferd i alla stadi..

saell Kop, thd var haegt ad bjarga einhverjum af myndunum a photoservice thaer reyndust  vera 1240 en ekki 900 eins og eg helt.. megnid er i lagi.. eg mun birta thaer thegar eg kemst i almennilegt netsamband.. bloggid er svakalega tregt herna uti.

Óskar Þorkelsson, 8.4.2009 kl. 08:06

4 Smámynd: Ridar T. Falls

Svo þú ert farangur í Taílandi!

Ridar T. Falls, 12.4.2009 kl. 10:45

5 identicon

Er búið að loka landamærastöðinni í Laos eftir að brúin kom þarna norðan við borgina?

Fór með fljótapramma þarna yfir og vísiteraði Laos aðeins. Fjandi fallegt þarna vesturfrá og mikið af skemmtilegum akurþorpum.

Segðu mér, forvitnum, er prófílmyndin þín tekin í Skálavík?

Guðmundur Sigurðsson (IP-tala skráð) 15.4.2009 kl. 12:46

6 Smámynd: Óskar Þorkelsson

sæll Guðmundur.. þegar brúin kom fyrir 2 árum þá kom  bara landamærastöð í staðinn öðru hvorum megin við hana.. ég er ekki viss hvorum meginn því ég silgdi bara undir hana.

prófílmyndin er tekin á vestfjörðum svo þú ert skratti glöggur.. en hún var ekki tekin í Skálavík heldur í ísafirði innst í djúpinu.

Óskar Þorkelsson, 16.4.2009 kl. 16:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband