í Rayong, Khao Yai og fleira

Þetta er stutt frásögn af síðustu dögum..

Hef heimsótt hindúamusteri á toppi á einhverju fjalli í Buri Ram.. daginn eftir fórum við svo í ferðalag til Khao yai þjóðgarðsins sem er skratti stór frumskógur sem er verndaður með kjafti og klóm.. enda mikil náttúruverðmæti þar, dýralíf og gróður..

http://www.dnp.go.th/parkreserve/asp/style1/default.asp?npid=9&lg=2

 Þar stoppuðum við stutt því þetta er frekar dýrt svæði til að gista á , mikil aðsókn og svo þau svæði sem leift er að ferðast um á eru þéttsetinn túristum , þó aðalega frá thailandi.

Sáum þó slatta af dýrum en fáar myndir teknar því vélin mín ræður ekki við að taka myndir í rökkri í fjarlægð.

síðan ókum við daginn eftir í gegnum allan þjóðgarðinn til Rayong sem er í suðurhluta austur thailands kambódíumegin.  Þar er ég nú í góðu yfirlæti á strandhóteli..

vonandi frjósið þið ekki í hel áður en ég kem heim ;)

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Gaman að fylgjast með ferðum ykkar, Óskar. Takk fyrir frásagnirnar.

Hér í Vesturbænum í Reykjavík var hvítt yfir öllu í morgun og sem ég sit hér og lít út um gluggann sé ég Esjuna, skjannahvíta niður að rótum. Það er ekkert tiltakanlega kalt,  um 3 gráður í plús, og logn. Ég heyri nágrannana skafa og sópa af bílunum hér fyrir utan.

Vorið hlýtur að koma eftir páska. 

Lára Hanna Einarsdóttir, 29.3.2009 kl. 11:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband