hinir friðelskandi israelar

Þessi friðelskandi þjóð er bara að hefna fyrir árásir palestínumanna á sitt eigið palestínska landsvæði sem ísraelar stálu um árið.. 

fyrst opna þeir fyrir hjálparsendingar.. að vísu eftir að hafa svelt Gasa í nær 10 daga og skammtað vatn og aðrar nauðsynjar til svæðisins.. en daginn eftir að hinir friðelskandi ísraelar sem bara eru að verja stolið land sendu inn 90 vörubíla þá sprengdu þeir sama svæði í loft upp.. þá er nefnilega pottþétt að hjálparsendingarnar komast ekki í réttar hendur..

en hey.. Hamas eru vondu strákarnir hérna.. skilja það örugglega ekki allir í dag ?? 

En til að bæta við fréttina þá eru amk 120 dauðir.. ekki 40 eins og mogginn segir og þessi tala á eftir að hækka mikið í dag.  en það gerir ekkert til því þetta eru allt saman hryðjuverkamenn .. er það ekki annars ? 


mbl.is Röð loftárása á Gaza
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Fjarki

Það er Jólafílingur í Ísraelsmönnum!!

Gleðileg Jól, Óskar og gott nýtt ár.

Fjarki , 27.12.2008 kl. 11:41

2 identicon

Hmmm ...  Skynja ég slatta af kaldhæðni í þessu bloggi þínu

En annars er þetta grafalvarlegt mál, og meðan heimurinn gerir ekkert (eins og venjulega) þá endar þetta með því að gyðingarnir útrýma Palestínumönnum.  En það er víst allt í lagi, þetta eru jú allt saman hryðjuverkamenn.

Jón Ingi (IP-tala skráð) 27.12.2008 kl. 12:07

3 Smámynd: Óskar Arnórsson

..það er svona þegar fólk getur ekki talað saman...

Óskar Arnórsson, 27.12.2008 kl. 12:40

4 Smámynd: Víðir Benediktsson

þetta er bara morð með köldu blóði og klár villimennska. Leiðtogar hins vestræna heims segja að þetta sé frekar "óþægilegt" Andskotans aumingjar.

Víðir Benediktsson, 27.12.2008 kl. 22:53

5 Smámynd: Óskar Arnórsson

Víðir! Hamas er með yfirlýsta stefnu að þeir vilji alla Ísraelsmenn í sjóinn.

Það er líka morð með köldu blóði að lokka sín eigin börn á færibandi í sprengjuskóla til að fá mynd af sér í blöðum og peninga frá Hamas!

Það er enn dæmalausari villimennska enn hægt er að ímynda sér.

Ísrael er orðið þreitt á þessum ógnunum alla daga og mér finnst þeir hafa verið ansi þolinmóðir...Það er líka furðulegt að það heyrist bara í stuðnigsmönnum Hamas enn voða lítiðið í stuðnings Ísraelum.

Bara minna á þetta endalausa stríð í Júgóslavíu sem USA sprengdi síðan í burtu á 3 vikum.

Ég myndi gera þetta ef ég ætti Ísrelska fjölskyldu...Hamas eru villimenn og lítið talað um það hvað þeir drepa af eigin fólki...

Óskar Arnórsson, 28.12.2008 kl. 12:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband