Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2009

Byltingin hafin ?

Þessi mótmæli hafa farið fram úr mínum björtustu vonum. Þau standa enn og skilst mér á kunningja sem ég hafði samband við áðan að þar væru enn þúsundir manna samankomnir 9 klst eftir að mótmælin hófust.

Geir Haarde er orðin sameinignartákn spillingarafla þessa lands og í hvert sinn sem smettið á honum birtist á skjánum eða rödd hans heyrist í útvarpinu þá fyllist ég reiði.. maðurinn er svo gersamlega getulaus , að þótt hann mundi éta pakka af viagra á dag mundi hann ekki ná músarreisn. 

Solla Stirða er einnig spillingartákn.. því hver önnur ástæða skyldi vera fyrir því að hún skuli ekki fyrir löngu vera búin að leysa þessa ömurlegu ríkisstjórn upp en sú að hún sé sjálf partur af spillingunni. Ekki mun hún bjarga einu eða neinu og gerðir hennar sýna einnig að hún hefur ekki getu til að breyta neinu.. rúin trausti eigin flokksmanna 

Ég spái áframhaldandi mótmælum á austurvelli daglega þar til þessi getulausa spillta ríkisstjórn snáfar sér frá völdum.  


mbl.is Beittu kylfum á mótmælendur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

finnarnir kunna þetta miklu betur..

Töff bjórauglýsing...

 

 


mbl.is Lokuðu bruggverksmiðju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

tilraunum lokið í bili

Þá er það ljóst að tilraunum ísraela með ný vopn og skotfæri er lokið og þeir geta farið heim og rannsakað skýrslur um dauðann og eyðilegginguna í samræmi við tilkostnað.. hvernig drepur maður mann eða barn eins ódýrt  og mögulegt er.. eins og staðan er í dag þá kostar hvert dautt palestínubarn IDF 100.000 dollara.. markmiðið er að ná þessum kostnaði niður í a.m.k. 85.000 dollara því stuðningur USA fer að öllum líkindum minnkandi á næstunni.. 

Önnur skýring er sú að ísraelar þorðu hreinlega ekki lengra inn í Gasaborg en úthverfin.. þeir gátu nefnilega átt það á hættu að hitta fyrir vopnað fólk þar.. nokkuð sem þeir hafa ekki séð undanfarnar 3 vikur í morðæði sínu á óbreyttum borgurum.

En að Hamas leggi niður vopn, er svona álíka líklegt og að frelsishetjur Frakka í seinni heimstyrjöldinni hefðu hætt mótspyrnu við Nasistana.. ekki séns.. en núna vantar Hamas vopn því endurnýjun þeirra í bardagasveitum jókst í réttu hlutfalli við hvert dautt barn og hvert sprengt hús. 

Hringrásin heldur áfram því þetta er hagur ísraela að hafa svona ástand, þá tryggja þeir sér stuðning viteysingana vestan hafs.. þetta er líka hagur Hamas því endurnýjun þeirra og stuðningur miðast við hatur á ísrael..

Win win situasjon og svona mun þetta halda áfram á næstu áratugum.. eða þar til ísrael brennur. what ever comes first. 

 


mbl.is Hamas-liðar leggi niður vopnin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rasismi zionasistana er augljós

Rasismi zionasistana er augljós, þeir hafa nú bannað öllum arabískum stjórnmálasamtökum í ísrael að taka þátt í kosningunum í febrúar.

hægri menn og stuðningsmenn morðvélarinnar ísraelsku ræða fjálglega þessa dagana um það hvað ísrael sé nú lýðræðislegt og mannlegt samfélag.. en þeir tala oftast nær af mikilli fákunnáttu um þetta mesta rasista samfélag jarðarinnar..

Þetta ýtir undir þær skoðanir utanaðkomandi að stefna zionasistana sé sú að hreinsa alla palestínu af öllum öðrum kynþáttum og trúfélögum en gyðingum..  

http://www.dagbladet.no/2009/01/12/nyheter/israel/utenriks/politikk/krigen_i_gaza/4348751/  

Hér er smámyndband um hvernig tillitsleysi ísraelskra hermanna er algert á hernámssvæðunum.

 


mbl.is Mótmælt við stjórnarráðið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Volvo 940 station vs Renault Modus ,crashtest..

Þetta er athyglisvert myndband sem ég tók eftir á norskri bílasíðu á netflakki í morgunn. 

hér testa þeir volvo 940 station á móti Renault Modus.  volvoinn er bæði stærri og ..sterkari ?

niðurstaðan kemur eflaust flestum á óvart.. en skoðið þetta athyglisverða myndband og dæmið sjálf. 

 


Hvar ertu ?

Hvar ertu?


Hvar eruð þið, sem skrifið svo fjálglega um ástandið og spillinguna?
Hvar eruð þið, sem ræðið um byltingu í heitu pottunum og á kaffistofunum?
Hvar eruð þið, sem fordæmið bankamenn og útrásarauðmenn?
Hvar eruð þið, sem skammið ríkisstjórn, alþingismenn og embættismenn?
Hvar eruð þið, sem hallmælið gróðærinu og viljið annað siðferði?
Hvar eruð þið, sem eruð ósátt við aðgerðir og aðgerðaleysi ráðamanna?
Hvar eruð þið, sem viljið réttlæti öllum til handa, ekki bara sumum?
Hvar eruð þið, sem hafið tapað á hlutabréfakaupum?
Hvar eruð þið, sem hafið tapað á peningamarkaðssjóðum?
Hvar eruð þið, sem hafið tapað lífeyrinum ykkar?
Hvar eruð þið, sem eruð ósátt við að bankarnir afskrifi skuldir auðmanna?
Hvar eruð þið, sem viljið ekki selja þeim fyrirtækin aftur skuldlaus? 
Hvar eruð þið, sem horfið á aldraða foreldra flutta hreppaflutningum?
Hvar eruð þið, sem viljið jafnræði?
Hvar eruð þið, sem sjáið húsnæðislánin ykkar rjúka upp?
Hvar eruð þið, sem hafið misst vinnuna?
Hvar eruð þið, sem viljið kosningar og nýja stjórn?
Hvar eruð þið, sem teljið réttlætiskennd ykkar misboðið?
Hvar eruð þið, sem eruð að lenda í heljargreipum verðtryggingar - sumir aftur?
Hvar eruð þið, sem viljið láta frysta eigur auðmanna?
Hvar eruð þið, sem fordæmið leynd og ógegnsæi aðgerða stjórnvalda?


http://larahanna.blog.is/blog/larahanna/entry/767334/ 

Koma svo og mæta í dag á austurvöll !! 


mbl.is Rannsókn nauðsynleg vegna galdmiðlaskiptasamninga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég er með lausn sem eflaust hugnast sjöllum vel til sparnaðar

Samkvæmt því sem ég hef séð undanfarin ár, eru sjálfstektarmenn almennt á móti gamalmennum, sjúkum og öryrkjum..

Lausnin er því að gefa hverjum og einum pillu !  Já pillu.. en bara 4 hver eða 6 hver er eitruð hinar eru vítamín.. þær eitruðu verði í samræmi við þann niðurskurð sem sjálfstektin vill ná fram.. ef það eru BARA 1.3 milljarðar þá þarf kannski ekki nema 7 hverja pilla að innihalda eitur, hinar vítamín svo gamalmennin sem fá þó að lifa hressist örlítið við og spari því enn frekara fé í kerfinu hans Gulla... og ef ástandið versnar þá bara auka hlutföll eitruðu pillnana í skammtinum. 

Hvað segið þið um þessa frábæri tillögur mínar til aðstoðar sjálfstektinni ?? 


mbl.is Bærinn vill verja sjúkrahúsið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

tugir þúsunda mótmæla í noregi

hér á íslandi mótmæla nokkur hundruð þessu viðbjóðslega þjóðarmorði ísraela.. en í noregi mótmæla tugirþúsunda þessa stundina í helstu bæjum noregs. 4000 í Bergen, 2000 í stavanger og í Oslo eru götubardagar og er miðbær Oslo eitt táragasský og lögreglan hefur ekki stjórn á einu eða neinu.. talið að mannfjöldin sé vel yfir 10.000 manns skv NRK1 sem ég er að horfa á í þessum skrifuðum orðum.

Fréttir frá öðrum bæjum í noregi eru á svipuðum nótum.. þúsundir mótmæla ísraelsku fasistunum.  Td í Kristiansand og Trondheim.. en enn sem komið er það bara Oslo þar sem ríkir uppþotssástand þessa stundina.

Norðmenn kunna að mótmæla óréttlæti og yfirgangi. 


mbl.is Á milli 300-400 mótmæltu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Engir helvískir ísfirðingar á ferð ?

Svoleiðis pakk var nú gaman að slá og kýla hér í den.. djöfuls ísfirðingar.. að fara inn á ísafjörð til að næla sér í stelpu og berja að minnsta kosti einn ísfirðing (karlkyns) í leiðinni.. það var góð helgi.

Svo komu einhverjir andskotans utanbæjarmenn.. frá Grindavík td á loðnubátum.. þá varð auðvitað að aðstoða ísfirðingana við að berja það lúsablesalið..

Löggan hafði nú vit á því í den fyrir Westan að vera ekkert að skipta sér af svoleiðis smotteríi eins og brotnu nefi eða ónýtum og brotnum tönnum.. þeir biðu oftast nær eftir því að menn þreittust eða rotuðust og handtóku undantekningalítið þann sem var máttfarnastur.. hinn eða hinir gátu sofið heima .. 

pfiff.. við gætum kennt þessum útlendingaunglingsdruslum töluverðan slatta..  td að vera ekki að hóta hver öðrum.. heldur ganga hreint til verks og rota einhvern.. og svo , að vera ekki að láta lögguna komast með fingurnar í góð slagsmál.. þessir útlendingar kunna ekkert til verka.. pfiff.


mbl.is Hópslagsmál í Lönguhlíð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ásakanir um stríðsglæpi komnar fram

það er ekkert nýtt að ísraelar séu sakaðir um stríðsglæpi en slík ásökun er komin fram vegna nýs vopns sem ísraelar virðast vera búnir að taka í notkun á Gaza.  Þetta er einhverskonar sprengja sem talin er innihalda fósfór og valdi brunaskaða á þeim sem verða fyrir sprengjunni ásamt því að hún myndar gífurlegan reyk. fyrst var talið að þetta væri eitthvað sem sleppt væri úr flugvélum til varnar flugskeitum en sérfræðingar hafa afvíst að svo sé og bæta jafnframt við að þessi vopnategund sé ný af nálinni.. ef rétt sé athugað hjá þessum sérfræðingum þá sé um augljósan stríðsglæp að ræða. 

Myndir fylgja þessum link :

http://www.vg.no/nyheter/utenriks/midtosten/artikkel.php?artid=535592 

 


mbl.is Ekki hægt að flytja særða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband