Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2009

Aldrei hægt að reikna með Everton

Þá er það orðið dagljóst að það er ekki hægt að reikna með Everton.. þeir drulla upp á bak þegar síst skyldi.. pfiff...
mbl.is Ronaldo með sigurmark United sem hefur fimm stiga forskot
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

það var engin sigurhátíð á austurvelli í dag

Ég mætti á austurvöll í dag og tvö af helstu kröfum okkar mótmælenda hafa verið náð.. ríkisstjórnin féll fyrir búsáhaldamótmælendum og stjórn fjármálaeftirlitsins er horfinn sinn veg..

Það sem eftir stendur er óværan í seðlabankanum en það verður ekki lengi... hann fer innan fárra daga og helst vil ég þann siðlausa mann burt af þessu landi að eilífu.. kannski getur hann farið til jómfrúareyja og eytt einhverju af þeim þúsundum milljarða sem stolið var á hans vakt.. hver veit.

annað sem var merkilegt.. það sást ekki einn einasti lögregluþjónn á Austuvelli á meðan á fundinum stóð, allavega tók égekki eftir neinum.. þetta hafði góð áhrif og var andrúmsloftið á fundinum vinsamlegt og friðsamlegt. 

Kannski er skýringuna að finna í því að BB er EKKI lengur yfirmaður lögreglunnar.. og að yfirmenn lögreglunnar skjálfa á beinunum í dag því að nýjir valdsherrar þeirra eru þeim ekkert sérstaklega hliðhollir..  Lögreglan er þjónn fólksins en ekki refsivöndur. 

BB farinn og það er strax friðsamlegra í þjóðfélaginu.


mbl.is Sigurhátíð Radda fólksins á Austurvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

við bara bíðum með pottana og pönnurnar..

Ef framsókn ætlar að klúðra þessu á síðustu mínútunum í miskilinni ábyrgð yfir þjóðarhag og þar með koma í veg fyrir myndun þessarar neyðarstjórnar þá verða mótmælin harðari en nokkru sinni fyrr og munu þá einnig beinast að framsóknarspillingunni sem er jafnvel verri en spilling íhaldsins..
mbl.is Ósætti um aðgerðirnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það styttist í stýrivaxtalækkun ...

Það styttist í stýrivaxtalækkun nú þegar Baugur leggur upp laupana.. nema auðvitað að Davíð verði farinn úr Seðlabankanum áður :)

 


mbl.is Baugur lokar skrifstofu á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

heimskautarefur ??

ég hef oft rekið mig á að íslendingar kalla íslensku tófuna heimskautaref.. þetta er sami stofn eða skyldur norska stofninum og þar heitir hann fjellrev eða fjallarefur.   Heimskautarefur eða "artic fox" er bara allt önnur tegund af ref eftir því sem ég best veit. Heimskautarefur skiptir td ekki um lit... er allt árið hvítur á meðan fjallarefurinn skiptir um lit vor og haust..

endilega fræðið mig ef þetta er rangt hjá mér !! 


mbl.is Skjóta rauðref til að vernda tófu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Auðvitað er Riise of dýr fyrir Hull

Riise er toppmaður og hefur bara spilað með toppliðum allan sinn feril og svoleiðis menn fara ekki í lið eins og Hull og Everton.. það er nokkuð ljóst !!

hana nú !! 


mbl.is Riise of dýr fyrir Hull
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Maður að meiri..

Þar koma að því að einhver axlaði ábyrgð !   gott framtak hjá Björvini og enn betra að reka Jónas í leiðinni því ekki sá Jónas að sér og axlaði augljósa ábyrgð..

Þetta mun gefa Samfylkingunni von í næstu kosningum... 

Hver er næstur ?


mbl.is Björgvin segir af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

www.siminn.is og ömurleg þjónusta

Ég lenti í því að sjónvarpið mitt yfir internet var lokað í gærkveldi.. nokkuð sem þetta skítafyrirtæki Síminn stundar.. loka á föstudagskveldi svo fólki sé nú refsað almennilega fyrir að gleyma reikning.

Hef lent í þessu áður svosem.  EN.. ég hringdi í þjónustuver símans í morgunn því ég hélt að eitthvað væri að kerfinu því það hafði verið óstöðugt undanfarið. bæði internet og sjónvarp.. fékk lagað netið í vikunni svo ég hélt að þetta væri af sama meiði.. vesen með router eða eitthvað slíkt.

Þjónustuverið svarar með sykursætri rödd og segir mér að ég hafi ekki greitt reikning, nokkuð sem kemur fyrir af og til.. svo ég spyr þessa sykursætu stúlkurödd hvort að það sé opnað strax ef ég borga í dag á netinu.. já svarar þessi lygatæfa !  Ég fer auðvitað strax á netbankann og borga reikningana.. og hringi aftur og fæ aðra sykursæta stúlkurödd sem sagði mér að hún gæti sko ekkert gert fyrir mig fyrr en á mánudaginn..

Ég klikkaði algerlega í símann því ég þoli ekki fólk sem lýgur að mér, ég hata fyrirtæki sem láta starfsmenn sína ljúga að viðskiptavinum sínum.

Ég þoli ekki www.simann.is lengur.. gersamlega hata þetta djöfuls lygafyrirtæki.

Ég sagði upp öllum viðskiptum við þetta ógeðslega fyrirtæki ! 

hana nú og góðann daginn :) 

 

 


ísraelar eru sem sagt ekki allir fávitar

.. bara ríkisstjórnin og stjórn IDF.... 
mbl.is Deilt um árangur innrásar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábært.....

Ég hef svarað á bloggum í allan dag með því að stjórnin eigi innan við sólarhring eftir ólifað svo þessi frétt er yndisleg músik í mínum eyrum..

Burt með spillinguna = burt með sjálfstæðisflokkinn !!  


mbl.is Samþykktu ályktun um stjórnarslit
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband