Bloggfærslur mánaðarins, júní 2007

er þetta Katyn 2 ?

fundu þeir þessa gröf fyrir tilviljun ?.. það skyldi þó ekki vera að bandaríkjaher eigi einhvern hlut hér að máli.
mbl.is Fjöldagröf fannst í Írak
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

einhvernvegin þá trúi ég þessum fréttum ekki..

..miðað við alla þá lýgi sem komið hefur úr Downingstræti og Hvíta húsinu í þessu "War on terror" kjaftæði þá trúi ég því fullkomlega að þessu sé plantað og "gerð" frétt um málið til að sýna fram á árangur í baráttunni..  eitthvað segir mér að menn Bin Ladens hefðu náð að sprengja sínar sprengjur hafi þeir ætlað að sprengja á annað borð..

Í fyrra þá handtóku þeir múslimska karlmenn um allt bretland undir dularfullu yfirskyni.. fjölmiðlar kokgleyptu dæmið og alda muslimahaturs hríslaðist yfir almúgann.. enginn var dæmdur eftir þá herferð en það gleymdist fljótt.. svo kemur þetta. Löggan finnur sprengju fyrir tilviljun.. my ass!

Þetta lyktar sem PR stunt af bestu gerð..

mbl.is "London verður sprengd"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

jahérna

það tók yfirvaldið 9 ólík sakamál að taka einstaklingin úr umferð... Afhverju var hann ekki tekin úr umferð í fyrsta afbrotinu ?

Svona sögur heyrir maður því sem næst daglega, að afbrotamenn fái afslátt af refsingum því þeir hafa svo marga dóma að baki.. þeir eru látnir lausir ef þeir viðurkenna brotið og ganga lausir aftur til þess eins að brjóta af sér aftur.. því þeir vita að yfirvaldið mun hvort sem er ekki stinga þeim inn fyrr en á 9 máli og þá gefa þeim magnafslátt af fyrri dómum.. svo sleppur kauði út eftir þriðjung afsláttartímans og gefur samfélagin fingurinn og hlær að yfirvaldinu um leið..

húrra fyrir íslensku réttarkerfi !!

mbl.is Úr umferð vegna fjölda sakamála
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

hvenær skyldi Rafa taka við RM ?

Þetta styrkir mig í þeirri trú á að Rafa sé að fara til RM í sumar.. spái því að það gerist innan 3-4 vikna.
mbl.is Capello rekinn frá Real Madrid
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

furðulegt !!

Valur vinnur og FH tapar í einum og sama leiknum.. ég hélt að þetta gæti bara ekki gerst Woundering
mbl.is Valur burstaði FH 4:1
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

mögnuð spenna alveg hreint !

Alltaf þegar maður sér svona fyrirsagnir þá dettur manni í hug eitthvað skemmtilegt.. góð bíómynd með alveg magnaðri spennu..

en í alvöruna.. mikið er það sorglegt að serbar skuli eiga sinn hápunt í tilverunni árið 1300 og súrkál !  Þetta er álíka sorglegt og oranjereglan í norður írlandi.. minnast manndrápa fyrir 4-500 árum sem einhvern vendipunkt í sinni sorglegu tilveru í dag !

mbl.is Spenna magnast upp í Kosovo
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vestmannaeyjaför



Ég skrapp til eyja í gær þriðjudag í viðskiptaerindum. Það hefur alltaf verið gaman að koma til eyja þótt ekki séu minningarnar margar af sigrum minna manna í KR fyrirferðamiklar í þeim minningum. KR hefur oftast nær átt erfitt uppdráttar í eyjum og það líka þegar við vorum meðal bestu liða landsins. En mínar eyjaferðir einskorðuðust í 20 ár við slíkar heimsóknir.

Móttökur eyjamanna voru höfðinglegar og vorum við félagarnir drifnir í tuðruferð umhverfis Heimaey. Þetta var mikil ævintýraferð og stórkostleg upplifun sem vel er hægt að mæla með. Útsýnið til lands var stórbrotið með Eyjafjallajökul gnæfandi yfir sjóndeildarhringnum vel fylgt eftir af Heklu og Kötlu. Óhætt er að segja að eyjamenn búi við fegursta útsýni landsins að öðrum ólöstuðum
Fuglalífið í kringum eyjarnar er ótrúlegt, ég hef aldrei séð svona mikið líf nokkurstaðar á landinu ( hef ekki komið í Látrabjarg á varptíma).. hvert sem maður leit var lundi á flugi eða syndandi, álkur og langvíur.. múkkar , súlur og mávar. Allt bókstaflega iðaði af lífi.
Þegar inn í höfnina var komið aftur sá ég nokkra eyjapeyja vera leika sér að því að stökkva í sjóinn af KAP 2 íklæddir flotbúningum.. þetta væri óhugsandi í reykjavík.. þar mundi lögreglan og sennilega barnaverndarnefnd skipta sér af um leið..

Ég átti frábæran dag í eyjum og vonandi kemst ég þangað aftur sem fyrst.. já talandi um það.. vonandi mætir KR ekki eyjamönnum í eyjum í bikarnum, held að KR mundi ekki ríða feitum hesti frá þeirri viðureign.




gjafir Friðriks horfnar í Mammon !

Þá er það ljóst að Valur er horfinn í hít mammons og ekkert eftir af gjöfum Friðriks.. ætli karlinn snúi sér í gröfinni ?
mbl.is Ný íþróttamannvirki Vals munu bera nafn Vodafone
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

góðar fréttir fyrir okkur poolara

vonandi verða þetta ekki einu góðu fréttirnar úr herbúðum Liverpool þetta sumarið..
mbl.is Nýr samningur milli Carlsberg og Liverpool
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

alveg magnað..

að íslendingar skuli ekki vera með svipuð verkefni í gangi.. við eigum nóg af vindi og höfum sett okkur markmið í endurnýtanlegri orkugerð.. en gerum fátt nema virkja hverja sprænuna á fætur annari sem eru virkjanlegar,  og blaðra um allt og ekkert..

norðmenn með alla sína orku standa okkur miklu framar á þessum sviðum..
 
mbl.is Tilraunir með fljótandi vindmyllur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband